Stjórn fiskveiða 2020-2021
Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 82 5. gr. □ 1 Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. er heimilt að varpa fyrir borð afla í rannsóknarleiðöngrum Hafrannsóknastofnunar, sem ekki er mögulegt að nýta vegna þrengsla um borð eða vegna skipulags og framkvæmdar leiðangurs. 6. gr. □ 1 Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum IV. kafla laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar með síðari breytingum. 7. gr. □ 1 Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. september 2013 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 810/2011, um nýtingu afla og aukaafurða, með áorðnum breytingum. Ákvæði til bráðabirgða: □ 1 Þrátt fyrir ákvæði A.-liðs 2. mgr. 3. gr. er skipum sem stunda makrílveiðar ekki skylt að koma með afskurð og hausa að landi á tímabilinu 7. júlí til 6. ágúst 2013. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. maí 2013.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==