Stjórn fiskveiða 2020-2021

Reglugerð nr. 298/2020, um skráningu og rafræn skil aflaupplýsinga 83 Reg lugerð um skráningu og rafræn skil aflaupplýsinga. 1. gr. □ 1 Reglugerð þessi gildir um skráningu og rafræn skil aflaupplýsinga íslenskra skipa með rafrænni afladagbók eða snjalltækjaforriti, jafnt innan sem utan íslensku fiskveiðilögsögunnar. □ 2 Öll skip er stunda veiðar í atvinnuskyni eða þörungaslátt skulu skila upplýsingum sem kveðið er á um í reglugerð þessari til Fiskistofu. 2. gr. □ 1 Upplýsingar sem skráðar eru skv. 3. gr. skulu nýtast í vísindalegum tilgangi fyrir Hafrann- sóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, sem eftirlitsgögn fyrir Fiskistofu og Landhelgisgæslu og til annarra verkefna sem varða stjórnun fiskveiða. Hafrannsóknastofnun er heimilt að veita öðrum rannóknaraðilum aðgang að gögnunum sem ekki eru rekjanleg til einstakra skipa til vísindarannsókna er varða stjórn fiskveiða. Að öðru leyti skulu upplýsingarnar vera trún- aðarmál milli allar ofangreindra aðila. 3. gr. □ 1 Skipstjórar skulu skrá eins nákvæmlega og unnt er eftirfarandi upplýsingar: 1. Nafn skips og skipaskrárnúmer. 2. Veiðarfæri, gerð og stærð. 3. Staðarákvörðun (breidd og lengd). 4. Afli eftir magni og tegundum. 5. Veiðidagur. 6. Löndunarhöfn og löndunardagur. 7. Sjófugl eftir fjölda og tegundum. 8. Sjávarspendýr eftir fjölda og tegundum. 9. Upplýsingar um afla, sem veiddur er en sleppt í samræmi við fyrirmæli laga eða annarra stjórnvaldsfyrirmæla. 10. Upplýsingar um tíma veiðarfæra í sjó, hvenær þau eru lögð og hvenær þau eru tekin upp. □ 2 Upplýsingar um afla sem fæst við veiðar, t.d. í hverju togi, ksti eða lögn, skal skrá svo fljótt sem verða má eftir að frágangi hans lýkur. □ 3 Í rafrænum afladagbókum skulu færslur vegna hverrar veiðiferðar aðgreindar með greinilegum hætti en í snallsímaforriti skal hver veiðiferð skráð sérstaklega. □ 4 Ef fleiri en eitt skip stunda veiðar með sama veiðarfæri í sömu veiðiferð, skal skráð hvaða skip stunda veiðarnar. Aflann skal einungis skrá hjá því skipi sem tekur aflann um borð. □ 5 Ef afli í uppsjávartegundum er fluttur milli skipa skal skráð hjá báðum skipum: Upplýsingar um magn eftir tegundum og eftir atvikum afurðum, á milli hvaða skipa aflinn er fluttur og hvort skipanna er veiðiskip aflans. □ 6 Við slátt á þörungum skal skrá hjá hverju skipi um sig, þ.m.t. pramma, upplýsingar um magn þörunga (blautvigt) sem tekið er innan netlaga hverrar fasteignar (sjávarjarðar). Hlutaðeigandi land- eigandi á rétt á aðgangi að upplýsingum úr aflaskráningu um þörungaslátt fyrir sinni landareign.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==