Stjórn fiskveiða 2020-2021

Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 84 4. gr. □ 1 Upplýsingum, sem skráðar eru í snjallsímaforrit skal skilað inn í gegnum símanúmer, sem er skráð hjá Fiskistofu. □ 2 Aflaskráningu skal vera lokið og aflaupplýsingar sendar til Fiskistofu með rafrænum hætti áður en skip er lagt að bryggju að lokinni veiðiferð. □ 3 Fiskistofa getur heimilað vegna sérstakra aðstæðna skil á afladagbók á eyðublaði sem finna má á vefsíðu Fiskistofu. 5. gr. □ 1 Ef rafræn afladagbók eða snjallsímaforrit bilar í veiðiferð skal skipstjóri tilkynna Fiskistofu um bilunina svo fljótt sem auðið er. Jafnframt skal skipstjóri skrá eins nákvæmlega og unnt er áætlaðan afla á blað og undirrita áður en skipi er lagt að bryggju að lokinni veiðiferð. Senda skal aflaupplýsingar innan 24 klukkustunda frá komu skips til löndunarhafnar, á afladagbok@fiskistofa.is á þar til gerðu formi sem finna má á vef Fiskistofu. 6. gr. □ 1 Skylt er að veita eftirlitsmönnum Fiskistofu og starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands aðgang að upplýsingum sem skráðar eru í afladagbók og veita aðstoð við að sannreyna þær. 7. gr. □ 1 Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. 18. gr. □ 1 Reglugerð þessi er sett, skv. lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglu- gerð nr. 746/2016, um afladagbækur. Ákvæði til bráðabirgða. □ 1 Heimilt er að skrá afla í afladagbækur á pappírsformi sem Fiskistofa útvegar fram til 31. ágúst 2020. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. mars 2020.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==