Stjórn fiskveiða 2020-2021

Reglugerð nr. 730/2020, um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta 85 Reg lugerð um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta. 1. gr. □ 1 Þar sem takmarkaðar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar í Ísafjarðardjúpi og Arnarfirði og engar innfjarðarrækjuveiðar voru stundaðar á Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda, Öxarfirði og Norðurfjörðum Breiðafjarðar á fiskveiðiárinu 2018/2019, og á Eldeyjarsvæði almanaksárið 2018, skal á fiskveiðiárinu 2019/2020 úthluta aflamarki sem nemur samtals 893 þorskígildislestum til báta, sem hafa hlutdeild í innfjarðarækju á áðurgreindum svæðum. □ 2 Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækjuvertíðanna 1996/1997 - 2005/2006 að frádregnum afla í innfjarðarrækju fiskveiðiársins 2018/2019 á viðkomandi svæði. Verðmætastuðullinn fyrir rækju er 0,52, miðað við þorskígildi og koma 152 þorskígildislestir í hlut báta frá Arnarfirði, 132 þorskígildislestir í hlut báta í Ísafjarðardjúpi, 148 þorskígildislestir í hlut báta við Húnaflóa, 153 þorskígildislestir í hlut báta við Skagafjörð, 70 þorskígildislestir í hlut báta á Skjálfanda, 201 þorskígildislest í hlut báta við Öxarfjörð, 23 þorskígildislestir í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 þorskígildislestir í hlut báts í Norðurfjörðum Breiðafjarðar. 2. gr. □ 1 Þar sem engar hörpudisksveiðar voru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hvalfirði á fiskveiðárinu 2019/2020 skal á fiskveiðiárinu 2020/2021 úthluta aflamarki sem samtals nemur 983 þorskígildislestum til báta, sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áðurgreindum svæðum. □ 2 Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007. Verðmætastuðullinn fyrir hörpudisk er 0,32, miðað við þorskígildi, og koma 7 þorskígildislestir í hlut báta frá Arnarfirði, 33 þorskígildislestir í hlut báta við Húnaflóa, 919 þorskígildislestir í hlut báta við Breiðafjörð og 24 þorskígildislestir í hlut báta við Hvalfjörð. 3. gr. □ 1 Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2019. Uppbæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa, steinbít, gullkarfa, keilu og löngu samkvæmt eftirfarandi töflu: Tegundir Lestir upp úr sjó Þorskígildislestir Þorskur 1.472 1.236 Ýsa 257 196 Ufsi 453 239 Steinbítur 51 25 Gullkarfi 199 141 Keila 8 3 Langa 26 12 Samtals: 2.466 1.852

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==