Tímarit SSF 2. tbl. 2018

4 T rúnaðarmannahandbók SSF er orðin aðgengileg á vef SSF. Við hvetjum félags- og trúnaðar- menn okkar til að kynna sér efni bókarinnar. Hjá SSF starfa um 160 trúnað- armenn, kjörnir af samstarfsfólki viðkomandi trúnaðarmanns. Starf trúnaðarmannsins er margþætt, ábyrgðarmikið og vandasamt. Væntingar til trúnaðarmanna eru miklar og til þess að þeir geti staðið undir væntingum hefur SSF liðsinnt þeim af alefli, bæði með námskeiðahaldi og stuðningi við starf þeirra með því að veita aðstoð og ráðgjöf. Það er okkar von að handbókin muni gagnast trúnaðarmönnum í þeirra starfi. TRÚNAÐARMANNA- HANDBÓK SSF S amkvæmt kjarasamningi SSF og SA fyrir tímabilið 1. október 2015 til 31. desember 2018 hækkuðu öll laun félagsmanna SSF á bilinu 20,8% til 25,0%. Í upphafi kjarasamnings árið 2015 hækkuðu laun á bilinu 3,2% til 7,2% þar sem lægri launin fengu meiri hækkun en þau hærri. Í október 2015 var einnig greidd 300.000 króna eingreiðsla til allra í 100% starfi á viðmiðunartímabili, og hlutfallslega til þeirra sem voru í hlutastarfi. Síðasta hækkun launa var 5,0% þann 1. maí 2018. Væntingar til komandi kjaraviðræðna sem fara í gang eftir sum- arleyfi eru misjafnar eftir því hverjir eiga í hlut. Kjararáð henti sprengju inn á borð samningsaðila á vinnumarkaði með glórulausum hækkunum launa opinberra embættismanna, alþingismanna og ráðherra. Vel má vera að þessir hópar hafi átt inni hækkun launa til samræmis við almennar launahækkanir á vinnumarkaði, en að taka 30-40% prósent hækkun í einu stökki var óskynsamleg aðgerð sem setti allt í uppnám. Margir tala fyrir því að stéttarfélög verði að tryggja umbjóðendum sínum sambærilega hækkun launa áður en næstu kjarasamningar verði settir í atkvæðagreiðslu félagsmanna. Yfirlýsingar forvígismanna verkalýðsfélaga hafa endurspeglað þessa kröfu og erfitt er að sjá hvernig viðkomandi geta gengið frá samningum sem verði á lægri nótum en hækkun Kjararáðs nam. Stjórn SSF, samninganefnd og formenn aðildarfé- laga SSF koma saman til fundar í haust til að undirbúa kröfugerð fyrir komandi kjarasamningslotu. Það er afar mikilvægt að félagsmenn hafi samband við félagslega kjörna fulltrúa sína og skrifstofu SSF með hugmyndir og tillögur að kjarabótum fyrir næsta samningstímabil. „Sumarið er tíminn“ söng Bubbi. Og þó að íslenska sumarið sé ekki alltaf sól, hiti og blíða þá er mikilvægt að njóta birtunnar og hlaða batterí sálar og líkama fyrir átökin í vetur. Sumarorlof er til að nota eins og mögulegt er yfir sumarmánuðina og mikilvægt að allir sem geta taki 4 vikur samfelldar í sumarfrí. Gleðilegt sumar! Friðbert Traustason, formaður SSF KJARASAMNINGAR Á stjórnarfundi SSF í lok apríl var samþykkt persónuverndarstefna SSF. Traust er eitt af einkunnarorðum SSF og leggur félagið mikla áherslu á að tryggja öryggi þeirra persónuupplýsinga sem félagsmenn SSF treysta félaginu fyrir. Félagið fylgist náið með þeim breyttu áherslum sem eru framundan í tengslum við nýja samevrópska persónuverndarlöggjöf sem tekur gildi í vor. Hægt er að kynna sér persónuverndarstefnu samtakanna á vefsíðu SSF, www.ssf.is . Mínar síður - þitt svæði Kynntu þér Mínar síður. Allt á einum stað. Þær einfalda umsóknir og veita þér upplýsingar um stöðu styrktarumsókna SSF SAMÞYKKIR PERSÓNUVERNDAR- STEFNU V ið erum á F acebook Við hvetjum félagsmenn SSF til að fylgjast með fréttum af félaginu á ssf.is og Facebook . Facebook-síða SSF: facebook . com / samtokstarfsmannafjarmalafyrirtaekja

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==