JAC Þjónustu- og ábyrgðarskírteini

Viðhald, þjónustutímabil og val á verkstæði. Skiptið ávallt við JAC verkstæði til að tryggja að bílnum sé viðhaldið samkvæmt forskrift verksmiðjunnar, hafi nýjustu hugbúnaðaruppfærslur til þess að gæta fyllsta öryggis. JAC verkstæði hafa ávallt aðgang að nýjustu upplýsingum og búa yfir reynslu sem er mikilvæg með tilliti til nauðsynlegs öryggis og rétts viðhalds á bílnum. Verkstæðið á að afhenda þér rétt afrit af viðhaldsáætluninni með upplýsingum um hvaða þætti hefur verið farið yfir þegar það hefur lokið viðhaldsþjónustu. Reglubundið viðhald (þjónusta), sem mælt er fyrir um frá verksmiðju, verður að framkvæma á bílnum þínum á því þjónustutímabili sem minnst er á í kafla 7 og hugsanlega annars staðar í þessum bæklingi. Þjónusta þarf bílinn að minnsta kosti á tveggja ára fresti jafnvel þótt honum sé lítið ekið. Ástæðan er sú að það á sér stað stöðug uppfærsla hugbúnaðar hans og náttúrulegt slit á þéttingum, innsiglum, gúmmíslöngum, olíu, vökva og þess háttar. Að auki er sérstaklega mikilvægt að athuga og þrífa hemlabúnað, smyrja bílinn og skoða hann á tveggja ára fresti. Við óskum þér til hamingju og vonum að þú verðir ánægður með JAC!

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==