JAC Þjónustu- og ábyrgðarskírteini

ÞJÓNUSTU- OG ÁBYRGÐARSKÍRTEINI

Upplýsingar um bifreið og eiganda

Efnisyfirlit 1 Kynning 2 Gæði og viðhald 3 Ábyrgð og söluaðili 4 JAC ábyrgð á nýjum bílum 5 Ábyrgð gegn gegnumtæringu 6 JAC viðhaldsáætlun 7 Skráning á viðhaldi (þjónustu). 8 Eftirlitsskráning vegna ryðvarnarábyrgðar JAC 9 Ábyrgð/endurkröfur yfirlit ATH! Þessi bæklingur fjallar um ábyrgðir og endurkröfurétt JAC fyrir þitt ökutæki. Bæklingurinn hefur gildi og skal ávallt geyma í ökutækinu ásamt skráningarskírteini og eigandahandbók. Honum skal ávallt framvísa á viðurkenndu JAC verkstæði þegar viðhaldsþjónustu, sem mælt er fyrir um, er sinnt eða þegar ábyrgðar- eða endurkröfur eru lagðar fram. Allar tegundir skoðana og viðhalds skal færa inn á þar til gert svæði í bæklingnum. Bæklingurinn skal fylgja bílnum við sölu þannig að nýr eigandi hafi aðgang að upplýsingum sem skráðar eru í hann.

1. Kynning. Kærar þakkir fyrir að velja JAC rafbíl frá JAC Motor Company Limited. Ábyrgðarskilmálarnir í þessum bæklingi snúa að RSA í gegnum viðurkennda söluaðila og verkstæði JAC. Lesið ábyrgðar- og þjónustubæklinginn og eigandahandbókina áður en akstur hefst svo tryggt sé að þú þekkir inn á aðgerðir bílsins og virkni. Í þessum þjónustu- og ábyrgðarbæklingi eru upplýsingar um ábyrgðarskilmála og frátekið pláss fyrir skráningu á viðhaldsþjónustu sem mælt er fyrir um. Skilmálarnir í þessari bók ná yfir bíla sem eru fluttir til Íslands af RSA*, nýskráðir eftir 1. janúar 2026. *Ítarlegri upplýsingar er að finna í kafla 4. ATH! MIKILVÆGT ATRIÐI SEM SNERTIR ÖRYGGI! Ökutækið kemur með háspennurafgeymi og rafíhlutum. Eigið aldrei við rafíhluti bílsins, hlífar, snúrur eða tengi þar sem hætta er á raflosti við snertingu sem getur verið lífshættuleg eða skaðað heilsu manna. Hafið ávallt samband við viðurkennt verkstæði JAC til að framkvæma vinnu af því tagi eða til að sinna viðhaldsþjónustu bílsins. ATH! MIKILVÆGT VARÐANDI HLEÐSLU! Háspennurafgeymar rafbíla þurfa að hafa náð ákveðnu hitastigi áður en þeir taka hleðslu. Það er því mikilvægt hlaða bílinn strax eftir að hann hefur verið í notkun, sérstaklega yfir vetrartímann. Ástæðan er sú að háspennurafgeymir bílsins hitnar upp við akstur og er því fyrr tilbúinn að taka á móti hleðslu eftir að bíllinn hefur verið í notkun.

2. Gæði og viðhald. Gæðaeftirlit. Þinn JAC var framleiddur samkvæmt alþjóðalega viðurkenndu gæðakerfi undir stöðugu eftirliti og stjórnun sem tryggir að hann var í besta mögulega ástandi þegar hann fór frá verksmiðju. Síðasti liðurinn í gæðaeftirlitinu var framkvæmdur af söluaðila JAC sem sinnti standsetningu og afhendingarferli áður en þú tókst við bílnum. Tilgangur þessa ferlis er að tryggja að bíllinn sé í besta mögulega ástandi og að fjarlægja verndarfilmur sem settar eru á hann í verksmiðju til að verja hann fyrir hnjaski þar til hann er afhentur viðskiptavini. Þú getur stuðlað að því að áframhaldandi gæðum bílsins með því að sjá til þess að bíllinn fái þá viðhaldsþjónustu sem mælt er fyrir um hjá viðurkenndu JAC verkstæði. Viðhaldsáætlanir. Undir kaflaheitinu viðhaldsþjónusta í eigandahandbókinni er að finna viðhaldsáætlanir frá framleiðanda sem mælt er fyrir um fyrir JAC rafbílinn þinn. Athugið að sérstök viðhaldsáætlun getur verið nauðsynleg fyrir norðlægar slóðir. Hafðu þess vegna samband við viðurkenndan sölu- eða þjónustuaðila JAC til að tryggja að bíllinn fái viðhaldsþjónustu af réttu tagi. JAC verkstæðið hefur ávallt aðgang nýjustu upplýsingum um réttu viðhaldsþjónustuna fyrir þinn bíl. Viðhaldsáætlununum skal fylgja til þess að tryggja hámarks virkni ökutækisins. Sjá einnig kafla 6 í þessum bæklingi. Eigandahandbókin inniheldur enn frekari og mikilvægar upplýsingar um almennt viðhald og undirbúning bílsins fyrir árstíðaskipti. Söluaðili JAC eða verkstæði er tilbúið að veita aðstoð ef einhver atriði í eigandahandbókinni eru ekki skýr.

3. Ábyrgð og söluaðili. JAC rafbílar fá orkuna frá háspennurafgeymi. Viðhald og ábyrgðarviðgerðir á bílunum útheimta viðurkennda sérfræðiþekkingu. Hafið því eingöngu samband við viðurkenndan JAC söluaðila eða verkstæði þegar framkvæma þarf viðgerðir eða viðhald. Viðurkennt JAC verkstæði býr yfir nauðsynlegri færni og réttindum til að þjónusta ökutæki þitt með öruggum hætti og þar með veita þér bestu hugsanlegu þjónustu.eru ekki skýr. Hafðu þennan bækling meðferðis næst þegar bíllinn er þjónustaður því hann veitir yfirlit yfir fyrri viðhaldsþjónustu. Bæklingurinn sýnir einnig ef þú átt rétt á JAC ábyrgðaviðgerðum ef á þeim þarf að halda. Því til viðbótar skaltu hafa aðrar tengdar upplýsingar um bílinn meðferðis (til dæmis skráningarskírteini). Sérhvert viðurkennt JAC verkstæði framkvæmir ábyrgðarviðgerðir, einnig í öðrum löndum. Þar sem búnaður sem fylgir bílum getur verið breytilegur eftir löndum getur viðgerðartími verið mismunandi langur. Svo gæti farið að að greiða þurfi fyrir viðgerðina (til dæmis ef þú hefur ekki haft meðferðis ábyrgðarbæklinginn til sönnunar á rétti þínum til ábyrgðarviðgerðar), og/eða ef bíllinn er eldri en tveggja ára. Í slíkum tilvikum þarf að fara gaumgæfilega yfir reikninginn yfir framkvæmdar viðgerðir. Biðjið verkstæðið um að lýsa með skýrum hætti hvert vandamálið var og leggja fram lista yfir þá varahluti sem skipt var út fyrir nýja. Ef þú hefur síðar samband við viðurkennt JAC verkstæði á Íslandi (gildir um bíla sem seldir eru nýir af RSA á Íslandi) mun það, í samráði við innflytjanda bílsins, ákvarða hvort þú eigir rétt á bótum.

4. JAC ábyrgð á nýjum bílum. JAC Auto Industry Company Limited, RSA, og umboðsaðili tryggja það að nýr JAC er framleiddur í samræmi við viðmið verksmiðjunnar og að hann er standsettur og yfirfarinn fyrir afhendingu. Komi í ljós efnis- eða framleiðslugallar í einhverjum hlutum bílsins innan ábyrgðartímabilsins verða hlutirnir lagfærðir eða skipt út fyrir nýja af JAC verkstæði án þess að eigandi þurfi að bera kostnað af varahlutum eða vinnu. *Lengd ábyrgðartímabils er hægt að sjá inná www.jac.is. Ábyrgðin gildir frá þeim degi sem bíllinn er nýskráður í fyrsta sinn. Sé bíllinn ekki þjónustaður samkvæmt þjónustuáætlun RSA gildir ábyrgðin eins lengi og lög kveða í hverju landi. *Hugsanlegt er að ábyrgðartími á háspennurafgeymi sé lengri, leitaðu upplýsinga hjá þínu umboði umábyrgðartímann fyrir þína bílgerð. *Gildir um bíla sem fluttir eru inn til Íslands af RSA og eru skráðir í fyrsta skipti eftir 1. janúar 2026. Fyrir aðra bíla, eða bíla sem RSA hefur selt og hafa verið fluttir út frá Noregi og Skandinavíu, gildir verksmiðjuábyrgð JAC í viðkomandi landi. Athugið að í sumum löndum fellur ábyrgðin alveg niður. Ábyrgð samkvæmt ábyrgðarskilmálum er takmörkuð við viðgerðir eða skipti á gölluðum hlutum vegna framleiðslugalla sem framkvæmdar eru af viðurkenndu JAC verkstæði eða viðurkenndum umboðsaðila. Ábyrgðin nær ekki til kostnaðar vegna dráttar, flutnings bíls á verkstæði, bílaleigubíla, vegatolla, matar, gistingar eða útgjalda vegna heimflutninga eftir lagfæringu á galla. (Samkomulag um greiðslu á slíkum kostnaði þarf að gera við söluaðila RSA fyrirfram). Ábyrgðin nær ekki heldur til fjártjóns sem rekja má til gallans, rekstrartaps, heilsutjóns eða eignatjóns né annars konar afleiðingartjóns. Allir varahlutir í ábyrgð sem skipt er út eru eign RSA. *Ábygðin hefur ekki áhrif á réttindi sem eigandinn hefur í samræmi við Lög um neytendakaup. Sjá einnig 9. kafla í þessum bæklingi um yfirlit yfir ábyrgð og endurkröfuákvarðanir. Fyrir önnur lönd í Skandinavíu gilda lög um kaup og sölu í hverju landi fyrir sig.

Skilyrði fyrir því að ábyrgð haldist í gildi eru: - Nota skal ökutækið í samræmi við leiðbeiningar í eigandahandbókinni og viðhalda því í samræmi við viðhaldsáætlanir verksmiðjunnar/RSA. Ábyrgðartímabil fyrir eftirfarandi íhluti takmarkast við 24 mánuði (2 ár) frá fyrsta skráningardegi eða 100.000 km, eftir því sem gerist fyrr. - 12V blýrafgeymir. - Tryggt er að magn kælivökva á loftfrískunarkerfinu sé rétt í 24 mánuði eða 100.000 km, eftir því sem fyrr gerist, nema tæming/fylling á loftfrískunarkerfinu hafi verið framkvæmd í tengslum við ábyrgðarviðgerð. - Ekki skal vanrækja viðhald bílsins, misbeita honum, ofhlaða hann, breyta honum eða nota hann til keppni eða hraðaksturs. - Ábyrgðin nær ekki til aukahluta sem eru ekki framleiddir af JAC eða til galla sem rekja má til notkunar á hlutum sem koma ekki frá JAC eða eru ekki viðurkenndir af JAC. - Ábyrgðin nær ekki yfir venjulegt slit á hlutum eins og hjólbörðum, þurrkublöðum, bremsuhlutum, rekstrarvörum og þjónustuhlutum eins og síum, kertum, ljósaperum, öryggjum, viftureimum, olíu og vökvum og öðru sem er háð ytri áhrifum og náttúrulegu sliti. - Eftir á uppsettir fylgihlutir. Um þá gilda ábyrgðir framleiðenda/birgja. Ábyrgðartíminn er 1 ár, nema annað sé tekið fram. Ábyrgð á hjólbörðum Hjólbarðaframleiðendur og umboðsaðilar þeirra á Íslandi bera ábyrgð á hjólbörðum sem upphaflega fylgja JAC bílum. Hafið þó fyrst samband við umboðsaðila JAC komi upp vandamál.

Ábyrgð á lakki. JAC ábyrgist skemmdir vegna ryðtæringar á yfirborðsflötum og lakkskemmdum sem rekja má til efnis- eða framleiðslugalla í 5 ár frá því bíllinn er tekinn í notkun eða er skráður í fyrsta sinn (það sem fyrr kemur). Með ryðtæringu á yfirborðsflötum er átt við ryðmyndun á lökkuðum eða krómlögðum flötum yfirbyggingarinnar án þess að gegnumtæring/ryðgöt myndist. Með lakkskemmdum er átt við galla eða skemmdir sem geta orsakað ryðmyndun eða birtist í formi aflitunar eða í lakkbólum. Ábyrgðin nær ekki til lakkskemmda vegna utanaðkomandi áhrifa eins og steinkasts, rispa, skemmda vegna úrkomu úr lofti (efni, lauf, fræ, súr rigning, fugladrit o.s.frv.), hagléls, vatns, flóða, storms, eldinga, jarðskjálfta eða annarra utanaðkomandi þátta. Ábyrgðin nær heldur ekki til lakkskemmda vegna breytinga á bílnum eða drátti á viðgerðum, ónógri bónun og almennu viðhaldi og tjóni sem verður vegna bílþvottavéla. 5. Ábyrgð gegn gegnumtæringu. JAC ábyrgist að gera við eða skipta út á JAC verkstæði án kostnaðar fyrir eiganda öllum þeim upprunalegu hlutum yfirbyggingar (að undanskildu hleðslupalli/gólfi) sem ryðga í gegn innan frá innan 5 ára frá dagsetningu nýskráningar á ökutækinu. Skilyrði og undantekningar fyrir því að ábyrgð gegn gegnumtæringu haldist í gildi: - Skoðun vegna ryðábyrgðar verður að hafa verið framkvæmd samkvæmt fyrirmælum framleiðanda. Umboðsaðili annast skoðunina en verkstæðið getur farið fram á það við viðskiptavininn að hann greiði kostnað vegna þrifa svo skoðunin geti farið fram. Kostnað vegna lagfæringa á skemmdum sem koma í ljós við skoðunina og eru ekki af völdum tæringar innan frá, greiðir viðskiptavinurinn. Sama á við um skemmdir og eðlilegt slit við ryðvarnarmeðferð. Skoðanir skulu fara fram árlega á eftirfarandi tímum: 1. skoðun er 48 mánuðum eftir að ábyrgðin tekur gildi.

2. og seinni skoðanir fari fram í þeim mánuði sem bíllinn var skráður í fyrsta sinn eða einum mánuði fyrr eða síðar. Skoðun skal framkvæmd annað hvert ár svo lengi sem ábyrgðin varir. - Allt venjubundið viðhald og umönnun bílsins gegn tæringu, svo sem þrif, bónun o.s.frv., eins og lýst er í eigandahandbókinni, skal hafa framkvæmt. - Ábyrgðin nær ekki til annarra ryðskemmda en gegnumtæringar á upprunalegum hlutum yfirbyggingarinnar. - Ábyrgðin nær ekki til gegnumtæringar sem tengjast hvers kyns skemmdum á yfirbyggingu né heldur ryðskemmdum sem rekja má til breytinga á yfirbyggingunni. - Ábyrgðin nær ekki til skemmda vegna steinkasts, rispa, dælda og þess háttar. - Tilkynna skal JAC verkstæði um ryðskemmdir um leið og þær uppgötvast. Tjón sem tilkynnt er eftir að ryðábyrgðin rennur út verður ekki bætt. - Allar viðgerðir á yfirbyggingu skulu framkvæmdar á faglegan hátt. Nota skal efni og aðferðir sem JAC mælir fyrir um að nota skuli. - Ábyrgðin nær ekki til tjóna vegna gegnumtæringar sem rekja má til rangra aðferða við viðgerðir eða notkun óupprunalegra hluta. - Ábyrgðin nær ekki til gegnumtæringar sem rekja má til öfgakenndrar notkunar eða vegna þess að bíllinn hefur verið að hluta eða öllu leyti undir vatni. 6. JAC viðhaldsáætlun. Hlutverk JAC viðhaldsáætlunarinnar er að tryggja að bílnum sé haldið við með reglubundum hætti með ráðlögðu millibili og á öruggan hátt svo tæknilegu ástandi hans sé viðhaldið. Almenna lýsingu á daglegu viðhaldi sem notandinn framkvæmir er að finna í eigandahandbók bílsins. ATH! Nákvæma viðhaldsáætlun sem gildir fyrir bílinn þinn þegar hann er notaður á Íslandi og Skandinavíu, er hægt að nálgast með því að hafa samband við næsta viðurkennda JAC verkstæði.

Í kafla 7 í þjónustubæklingnum eru fráteknar síður fyrir skráningu á viðhaldsþjónustu sem mælt er fyrir um og framkvæmd hefur verið. Framkvæmt viðhald (þjónusta) skal skrá í sérstaka reiti í bæklinginn. Verkið skal staðfesta með stimpli og undirskrift JAC verkstæðis strax að verki loknu. Reglulegt viðhald á bílnum er mikilvægt fyrir öryggi þitt, endingu bílsins og til þess að viðhalda JAC ábyrgð. Gætið þess að vanrækja ekki viðhald bílsins. Daglegt viðhald. Ásamt reglubundnu viðhaldi (þjónustu), sem mælt er fyrir um af verksmiðjunni, ættir þú að framkvæma daglega skoðun til að ganga úr skugga um að bíllinn sé í góðu ástandi. Með því getur þú einnig uppgötvað hugsanlega galla og látið lagfæra þá áður en þeir verða að vandamáli sem geta leitt til þess að bíllinn verði óökufær. Dæmi um og lýsingu á daglegri skoðun er að finna í eigandahandbókinni. Varúð! Uppgötvir þú galla við daglega skoðun ættir þú að láta laga þá eins fljótt og auðið er á viðurkenndu JAC verkstæði/umboði. Það getur aukið öryggi þitt. 12V blýrafgeymir. Auk háspennurafgeymisins er JAC einnig með hefðbundinn 12V blýrafgeymi. Þessi rafgeymir veitir orku til rafeindabúnaðar og annars hefðbundins búnaðar eins og ljósa, útvarps, ræsibúnaðar, bílflautu, læsinga, hleðslubúnaðar fyrir háspennurafgeymi, eftirlitsbúnaðar og fleiri þátta.

7. Skráning á viðhaldi / þjónustu. þjónusta 1 oFull þjónusta oSkipt um hemlavökva oSkipt um frostlög oSkipt um gírolíu oRyðeftirlit framkvæmt Stimpill þjónusta 2 oFull þjónusta oSipt um hemlavökva oSkipt um frostlög oSkipt um gírolíu oRyðeftirlit framkvæmt Stimpill Kílómetrastaða Dags. og undirskrift Kílómetrastaða Dags. og undirskrift þjónusta 3 oFull þjónusta oSkipt um hemlavökva oSkipt um frostlög oSkipt um gírolíu oRyðeftirlit framkvæmt Stimpill þjónusta 4 oFull þjónusta oSkipt um hemlavökva oSkipt um frostlög oSkipt um gírolíu oRyðeftirlit framkvæmt Stimpill Kílómetrastaða Dags. og undirskrift Kílómetrastaða Dags. og undirskrift

Skráning á viðhaldi / þjónustu. þjónusta 5 oFull þjónusta oSkipt um hemlavökva oSkipt um frostlög oSkipt um gírolíu oRyðeftirlit framkvæmt Stimpill þjónusta 6 oFull þjónusta oSipt um hemlavökva oSkipt um frostlög oSkipt um gírolíu oRyðeftirlit framkvæmt Stimpill Kílómetrastaða Dags. og undirskrift Kílómetrastaða Dags. og undirskrift þjónusta 7 oFull þjónusta oSkipt um hemlavökva oSkipt um frostlög oSkipt um gírolíu oRyðeftirlit framkvæmt Stimpill þjónusta 8 oFull þjónusta oSkipt um hemlavökva oSkipt um frostlög oSkipt um gírolíu oRyðeftirlit framkvæmt Stimpill Kílómetrastaða Dags. og undirskrift Kílómetrastaða Dags. og undirskrift

1. Ryðeftirlit. 24 mánuðir. Ekkert tjón finnst. Tjón á lakki, sjá mynd. Tjón í ryðvörn. Tjón á yfirbyggingu sem er lagfært. Tjón á yfirbyggingu sem er ekki lagfært Niðurstöður af eftirliti skal merkja með þessum táknum: + Steinkast, # Rispur, ! Beyglur, ■ Tjón á yfirbyggingu, ▼ Tjón í ryðvörn Stimpill Kílómetrastaða Dags. og undirskrift

2. Ryðeftirlit. 48 mánuðir. Ekkert tjón finnst. Tjón á lakki, sjá mynd. Tjón í ryðvörn. Tjón á yfirbyggingu sem er lagfært. Tjón á yfirbyggingu sem er ekki lagfært Niðurstöður af eftirliti skal merkja með þessum táknum: + Steinkast, # Rispur, ! Beyglur, ■ Tjón á yfirbyggingu, ▼ Tjón í ryðvörn Stimpill Kílómetrastaða Dags. og undirskrift

3. Ryðeftirlit. 72 mánuðir. Ekkert tjón finnst. Tjón á lakki, sjá mynd. Tjón í ryðvörn. Tjón á yfirbyggingu sem er lagfært. Tjón á yfirbyggingu sem er ekki lagfært Niðurstöður af eftirliti skal merkja með þessum táknum: + Steinkast, # Rispur, ! Beyglur, ■ Tjón á yfirbyggingu, ▼ Tjón í ryðvörn Stimpill Kílómetrastaða Dags. og undirskrift

4. Ryðeftirlit. 96 mánuðir. Ekkert tjón finnst. Tjón á lakki, sjá mynd. Tjón í ryðvörn. Tjón á yfirbyggingu sem er lagfært. Tjón á yfirbyggingu sem er ekki lagfært Niðurstöður af eftirliti skal merkja með þessum táknum: + Steinkast, # Rispur, ! Beyglur, ■ Tjón á yfirbyggingu, ▼ Tjón í ryðvörn Stimpill Kílómetrastaða Dags. og undirskrift

5. Ryðeftirlit. 120 mánuðir. Ekkert tjón finnst. Tjón á lakki, sjá mynd. Tjón í ryðvörn. Tjón á yfirbyggingu sem er lagfært. Tjón á yfirbyggingu sem er ekki lagfært Niðurstöður af eftirliti skal merkja með þessum táknum: + Steinkast, # Rispur, ! Beyglur, ■ Tjón á yfirbyggingu, ▼ Tjón í ryðvörn Stimpill Kílómetrastaða Dags. og undirskrift

9. Ábyrgð/endurkröfur yfirlit. - Forsenda þess að ábyrgðir á JAC haldist í gildi er að allt viðhald á bílnum, sem mælt er fyrir um, sé í samræmi við lýsingu verksmiðjunnar / RSA og sé framkvæmt af viðurkenndu JAC verkstæði. Skrifa skal upp á viðhaldsvinnu og stimpla á þar til gerðu svæði í þessum bæklingi. Það er á ábyrgð eigandans að þessi vinna sé skráð. - Bíllinn er í ábyrgð svo framarlega sem staðið er að þjónustu og viðhaldi hans í samræmi við það sem lýst er í eigandahandbók/leiðbeiningum umboðsaðila og lýst er og vottað í þessum bæklingi. - Allar kröfur í tengslum við ábyrgð/endurkröfur verða að berast til JAC verkstæðis innan hæfilegs tíma (60 daga) og án ástæðulauss dráttar eftir að kaupandi uppgötvar gallann eða hefði átt að uppgötva hann. - Ábyrgðin nær ekki til galla/tjóns af völdum þjófnaðar, slysa (utanaðkomandi áhrifa), vanrækslu eða annarrar óábyrgrar notkunar. Seljandi/verkstæði mun í hverju tilviki meta hvort röng notkun af þessu tagi geti verið orsök galla/tjóns. - Ábyrgðin nær ekki til ryðskemmda af völdum salts á vegum, vanrækslu við þrif og bónun eða öðru sem rekja má til þess að viðhaldi hefur ekki verið sinnt eins og mælt er fyrir um. - Viðhald (þjónusta) sem mælt er fyrir um skal framkvæma innan ± 10% af uppgefnu þjónustutímabili. (Hafðu samband við verkstæðið þitt til að fá upplýsingar um rétt þjónustutímabili fyrir bílgerðina þína). - Ábyrgðin nær ekki til skemmda vegna steinkasts, rispa, dælda og þess háttar. - Ábyrgðin nær ekki til tjóna sem falla undir lögboðna ábyrgðartryggingu ökutækja (bótaskyldu, kaskótryggingu, sjálfstryggingu). - Ábyrgðin nær ekki til afleiddra tjóna af völdum galla sem eigandi/notandi hefði átt að uppgötva innan hæfilegs tíma og/eða galla sem seljanda/verkstæði var ekki tilkynnt tafarlaust um. JAC Automotive Co og RSA áskilja sér rétt til að gera breytingar á smíði eða búnaði hvenær sem er án þess að vera skuldbundnir til þess að gera það á áður afhentum bílum.

Viðhald, þjónustutímabil og val á verkstæði. Skiptið ávallt við JAC verkstæði til að tryggja að bílnum sé viðhaldið samkvæmt forskrift verksmiðjunnar, hafi nýjustu hugbúnaðaruppfærslur til þess að gæta fyllsta öryggis. JAC verkstæði hafa ávallt aðgang að nýjustu upplýsingum og búa yfir reynslu sem er mikilvæg með tilliti til nauðsynlegs öryggis og rétts viðhalds á bílnum. Verkstæðið á að afhenda þér rétt afrit af viðhaldsáætluninni með upplýsingum um hvaða þætti hefur verið farið yfir þegar það hefur lokið viðhaldsþjónustu. Reglubundið viðhald (þjónusta), sem mælt er fyrir um frá verksmiðju, verður að framkvæma á bílnum þínum á því þjónustutímabili sem minnst er á í kafla 7 og hugsanlega annars staðar í þessum bæklingi. Þjónusta þarf bílinn að minnsta kosti á tveggja ára fresti jafnvel þótt honum sé lítið ekið. Ástæðan er sú að það á sér stað stöðug uppfærsla hugbúnaðar hans og náttúrulegt slit á þéttingum, innsiglum, gúmmíslöngum, olíu, vökva og þess háttar. Að auki er sérstaklega mikilvægt að athuga og þrífa hemlabúnað, smyrja bílinn og skoða hann á tveggja ára fresti. Við óskum þér til hamingju og vonum að þú verðir ánægður með JAC!

Til minnis

Til minnis

Suzuki bílar hf. Skeifan 17, 108 Reykjavík Sími: 568 5100 www.jac.is Norwegian, printed Nov. 2025. Part no: JACSH-2022 RSA (Rutebileiernes Standardiserings AS) Postboks 4004 Gulskogen NTelefon: 32 21 88 00 Telefax: 32 82 49 53 www.JAC.no Norwegian, printed Nov. 2025. Part no: JACSH-2022

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==