JAC Þjónustu- og ábyrgðarskírteini

2. og seinni skoðanir fari fram í þeim mánuði sem bíllinn var skráður í fyrsta sinn eða einum mánuði fyrr eða síðar. Skoðun skal framkvæmd annað hvert ár svo lengi sem ábyrgðin varir. - Allt venjubundið viðhald og umönnun bílsins gegn tæringu, svo sem þrif, bónun o.s.frv., eins og lýst er í eigandahandbókinni, skal hafa framkvæmt. - Ábyrgðin nær ekki til annarra ryðskemmda en gegnumtæringar á upprunalegum hlutum yfirbyggingarinnar. - Ábyrgðin nær ekki til gegnumtæringar sem tengjast hvers kyns skemmdum á yfirbyggingu né heldur ryðskemmdum sem rekja má til breytinga á yfirbyggingunni. - Ábyrgðin nær ekki til skemmda vegna steinkasts, rispa, dælda og þess háttar. - Tilkynna skal JAC verkstæði um ryðskemmdir um leið og þær uppgötvast. Tjón sem tilkynnt er eftir að ryðábyrgðin rennur út verður ekki bætt. - Allar viðgerðir á yfirbyggingu skulu framkvæmdar á faglegan hátt. Nota skal efni og aðferðir sem JAC mælir fyrir um að nota skuli. - Ábyrgðin nær ekki til tjóna vegna gegnumtæringar sem rekja má til rangra aðferða við viðgerðir eða notkun óupprunalegra hluta. - Ábyrgðin nær ekki til gegnumtæringar sem rekja má til öfgakenndrar notkunar eða vegna þess að bíllinn hefur verið að hluta eða öllu leyti undir vatni. 6. JAC viðhaldsáætlun. Hlutverk JAC viðhaldsáætlunarinnar er að tryggja að bílnum sé haldið við með reglubundum hætti með ráðlögðu millibili og á öruggan hátt svo tæknilegu ástandi hans sé viðhaldið. Almenna lýsingu á daglegu viðhaldi sem notandinn framkvæmir er að finna í eigandahandbók bílsins. ATH! Nákvæma viðhaldsáætlun sem gildir fyrir bílinn þinn þegar hann er notaður á Íslandi og Skandinavíu, er hægt að nálgast með því að hafa samband við næsta viðurkennda JAC verkstæði.

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==