Ábyrgð á lakki. JAC ábyrgist skemmdir vegna ryðtæringar á yfirborðsflötum og lakkskemmdum sem rekja má til efnis- eða framleiðslugalla í 5 ár frá því bíllinn er tekinn í notkun eða er skráður í fyrsta sinn (það sem fyrr kemur). Með ryðtæringu á yfirborðsflötum er átt við ryðmyndun á lökkuðum eða krómlögðum flötum yfirbyggingarinnar án þess að gegnumtæring/ryðgöt myndist. Með lakkskemmdum er átt við galla eða skemmdir sem geta orsakað ryðmyndun eða birtist í formi aflitunar eða í lakkbólum. Ábyrgðin nær ekki til lakkskemmda vegna utanaðkomandi áhrifa eins og steinkasts, rispa, skemmda vegna úrkomu úr lofti (efni, lauf, fræ, súr rigning, fugladrit o.s.frv.), hagléls, vatns, flóða, storms, eldinga, jarðskjálfta eða annarra utanaðkomandi þátta. Ábyrgðin nær heldur ekki til lakkskemmda vegna breytinga á bílnum eða drátti á viðgerðum, ónógri bónun og almennu viðhaldi og tjóni sem verður vegna bílþvottavéla. 5. Ábyrgð gegn gegnumtæringu. JAC ábyrgist að gera við eða skipta út á JAC verkstæði án kostnaðar fyrir eiganda öllum þeim upprunalegu hlutum yfirbyggingar (að undanskildu hleðslupalli/gólfi) sem ryðga í gegn innan frá innan 5 ára frá dagsetningu nýskráningar á ökutækinu. Skilyrði og undantekningar fyrir því að ábyrgð gegn gegnumtæringu haldist í gildi: - Skoðun vegna ryðábyrgðar verður að hafa verið framkvæmd samkvæmt fyrirmælum framleiðanda. Umboðsaðili annast skoðunina en verkstæðið getur farið fram á það við viðskiptavininn að hann greiði kostnað vegna þrifa svo skoðunin geti farið fram. Kostnað vegna lagfæringa á skemmdum sem koma í ljós við skoðunina og eru ekki af völdum tæringar innan frá, greiðir viðskiptavinurinn. Sama á við um skemmdir og eðlilegt slit við ryðvarnarmeðferð. Skoðanir skulu fara fram árlega á eftirfarandi tímum: 1. skoðun er 48 mánuðum eftir að ábyrgðin tekur gildi.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==