Kjarasamningur milli VR og Samtaka atvinnulífsins

21 1.11.5. Störf erlendis Sé starfsmanni falið að starfa í öðru landi í einn mánuð eða lengur skal hann fá skriflega stað- festingu ráðningar fyrir brottför. Auk upplýsinga skv. gr. 1.11.4. skal eftirfarandi koma fram: 1. Áætlaður starfstími erlendis. 2. Í hvaða gjaldmiðli laun eru greidd. 3. Uppbætur eða hlunnindi sem tengjast starfi erlendis. 4. Eftir atvikum skilyrði þess að starfsmaður geti snúið aftur til heimalandsins. Upplýsingar skv. 2. og 3. tl. má gefa með tilvísun til laga eða kjarasamninga. 1.11.6. Tímabundnar ráðningar Um tímabundnar ráðningar fer skv. lögum nr. 139/2003 um tímabundna ráðningu starfsmanna. 1.12. Samkeppnisákvæði Ákvæði í ráðningarsamningum sem banna starfsmönnum að ráða sig til starfa hjá sam- keppnisaðilum vinnuveitenda eru óskuldbindandi séu þau víðtækari en nauðsynlegt er til að varna samkeppni eða skerða með ósanngjörnum hætti atvinnufrelsi starfsmannsins. Hvort svo er verður að meta í hverju einstöku tilviki að teknu tilliti til allra atvika. Samkeppnis- ákvæði mega því ekki vera of almennt orðuð. Við mat á því hversu samkeppnisákvæði í ráðningarsamningi má vera víðtækt, einkum hvað varðar gildissvið og tímamörk, þarf að horfa til eftirfarandi þátta: a. Hvers konar starfi viðkomandi starfsmaður gegnir, t.d. hvort hann er lykilstarfsmaður, er í beinu sambandi við viðskiptamenn eða ber ríka trúnaðarskyldu. Einnig hvaða vitneskju eða upplýsingar starfsmaðurinn kann að hafa um starfsemi fyrirtækisins eða viðskiptamenn þess. b. Hversu hratt þekking starfsmannsins úreldist og hvort gætt sé eðlilegs jafnræðis milli starfsmanna. c. Hvers konar starfsemi er um að ræða og hverjir eru samkeppnisaðilar á þeim markaði sem fyrirtækið starfar og þekking starfsmanns nær til. d. Að atvinnufrelsi starfsmanns sé ekki skert með ósanngjörnum hætti. e. Að samkeppnisákvæðið sé afmarkað og hnitmiðað í því skyni að vernda ákveðna samkeppnishagsmuni. f. Þá hefur einnig áhrif hvaða umbun starfsmaður fær, t.d. hver laun hans eru. Samkeppnisákvæði ráðningarsamninga gilda ekki sé starfsmanni sagt upp störfum án þess að hann hafi sjálfur gefið nægilega ástæðu til þess.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==