Kjarasamningur milli VR og Samtaka atvinnulífsins

55 14. ÁUNNIN RÉTTINDI 14.1. Áunnin réttindi Áunnin réttindi starfsmanna skulu haldast við endurráðningu innan eins árs. Á sama hátt skulu áunnin réttindi taka gildi á ný eftir eins mánaðar starf ef endurráðning verður eftir meira en eitt ár, en innan þriggja ára. Starfsmaður, sem unnið hefur eitt ár eða lengur samfellt hjá sama vinnuveitanda, skal á sama hátt njóta áunninna réttinda á ný eftir þriggja mánaða starf, ef til endurráðningar kemur eftir meira en þriggja ára starfshlé en þó innan fimm ára. Starfsmaður er nýtur betri kjara, en í samningum þessum eru ákveðin, skal halda þeim réttindum óskertum meðan hann gegnir sama starfi. 14.2. Áunnin réttindi vegna starfa erlendis Erlendir starfsmenn hér á landi svo og þeir Íslendingar sem starfað hafa erlendis flytja með sér áunninn starfstíma gagnvart réttindum kjarasamninga sem tengd eru starfstíma í starfs- grein enda verði starfið erlendis talið sambærilegt. Starfsmenn skulu við ráðningu færa sönnur á starfstíma sinn með vottorði fyrrum vinnu- veitanda eða með öðrum jafn sannanlegum hætti. Geti starfsmaður ekki við ráðningu framvísað vottorði sem fullnægir skilyrðum skv. 3. og 4. mgr. er honum heimilt að leggja fram nýtt vottorð innan þriggja mánaða frá ráðningu. Taka þá áunnin réttindi gildi frá og með næstu mánaðamótum á eftir. Vinnuveitandi skal staðfesta móttöku vottorðs. Í vottorði fyrrum vinnuveitanda skal m.a. greina: Nafn og persónuauðkenni viðkomandi starfsmanns. Nafn og auðkenni fyrirtækisins sem gefur út staðfestinguna, ásamt síma, netfangi og nafni þess aðila sem er ábyrgur fyrir útgáfu hennar. Lýsingu á því starfi sem viðkomandi stundaði. Hvenær viðkomandi hóf störf hjá viðkomandi fyrirtæki, hvenær hann lauk störfum og hvort rof, og þá hvenær, var á starfi viðkomandi. Vottorð skal vera á ensku eða þýtt yfir á íslensku af löggiltum skjalaþýðanda.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==