Kjarasamningur milli VR og Samtaka atvinnulífsins

58 Forsendur samningsins eru eftirfarandi: 1. Kaupmáttur launa hafi aukist á samningstímabilinu samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands. 2. Vextir taki verulegum lækkunum fram að endurskoðun samningsins í september 2020 og haldist lágir út samningstímann. 3. Stjórnvöld standi við gefin fyrirheit samkvæmt yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar „Stuðningur stjórnvalda við lífskjarasamninga“ og„Yfirlýsing ríkisstjórnar um aðgerðir til að draga úr vægi verðtryggingar“ sem gefnar eru út í tengslum við kjarasamning þennan. Mat á forsendum Launa- og forsendunefnd skal meta hvort eftirfarandi forsendur hafi staðist: Í september 2020 skal nefndin meta hvort forsenda um kaupmátt launa skv. 1. lið, vextir skv. 2. lið og hvort þær stjórnvaldsákvarðanir, lagabreytingar og fjármögnun sem heitið er í yfirlýsingum ríkisstjórnar skv. 3. lið hafi staðist. Nefndin skal tilkynna fyrir lok september 2020 hvort ofangreindar forsendur hafi staðist. Í september 2021 skal nefndin meta hvort forsenda um kaupmátt launa skv. 1. lið, vextir skv. 2. lið og hvort þær stjórnvaldsákvarðanir, lagabreytingar og fjármögnun sem heitið er í yfirlýsingum ríkisstjórnar skv. 3. lið hafi staðist. Nefndin skal tilkynna fyrir lok september 2021 hvort ofangreindar forsendur hafi staðist. Viðbrögð við forsendubresti Fari svo að einhver af ofangreindum forsendum standast ekki skal kalla saman sameigin- legan fund samninganefnda fyrrgreindra aðila og framkvæmdastjórnar SA sem leita skulu leiða til þess að markmið samningsins nái fram að ganga og leita samkomulags um við- brögð til að vinna að því að hann haldi gildi sínu. Náist ekki samkomulag um viðbrögð við forsendubresti skal sá þeirra aðila sem vill ekki að samningurinn haldi gildi sínu tilkynna um það sem hér segir: Vegna endurskoðunar í september 2020. Fyrir kl. 16 þann 30. september 2020 fellur samningurinn þá úr gildi þann 1. október 2020. Vegna endurskoðunar í september 2021. Fyrir kl. 16 þann 30. september fellur samningurinn þá úr gildi þann 1. október 2021.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==