Kjarasamningur milli VR/LÍV og Félags atvinnurekanda

28 atvinnurekanda innan þess frests hvaða læknir annist hann eða muni gefa út læknisvottorð, á hann rétt á uppbótarorlofi jafnlangan tíma og veikindin sannanlega vöruðu. Undir framangreindum ástæðum skal starfsmaður ávallt færa sönnur á veikindi sín með læknisvottorði. Atvinnurekandi á rétt á að láta lækni vitja starfsmanns er veikst hefur í orlofi. Uppbótarorlof skal eftir því sem kostur er veitt á þeim tíma sem starfsmaður óskar á tímbilinu 2. maí til 15. september nema sérstaklega standi á. Sömu reglur og að framan- greinir gilda um slys í orlofi. 4.5. Orlofslög Að öðru leyti fer um orlof skv. lögum um orlof nr. 30/1987. 4.6. Fæðingarorlof Samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000 skal fæðingarorlof reiknast til starfstíma við mat á starfstengdum réttindum, svo sem rétti til orlofstöku og lengingar orlofs samkvæmt kjarasamningum, starfsaldurshækkana, veikindaréttar og uppsagnarfrests. Sama gildir ef kona þarf af öryggisástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti. Lögbundið fæðingarorlof telst til unnins tíma við útreikning orlofsréttar, þ.e. réttar til frítöku en ekki orlofslauna. - Sjá grein 8.4 um mæðraskoðun. Dæmi um útreikning orlofslauna: Maður hefur í laun fyrir afgreiðslustörf í maímánuði 2019, 350.000 kr. vegna dagvinnu og 50.000 kr. vegna yfirvinnu fyrir hvern unninn mánuð. Samtals hefur hann í laun 400.000 kr. Orlof vegna þessa mánaðar er 10,17% af 400.000 kr. eða 40.680 kr. Orlofinu er breytt í orlofsstundir með því að deila í það með gildandi dagvinnutímakaupi, sem er 2.229,30 kr. (350.000 kr./157). Þannig eru orlofsstundir vegna maímánaðar samtals 18,25 stundir (400.000 kr. x 10,17% / 2.229,30 kr.). Frá 1. janúar 2020 er orlofsstunda uppsöfnunin 17,88 þar sem deilitalan breytist úr 157 í 153,86 á mánuði þannig að tíma- kaup í dagvinnu hækkar í kr. 2.274,79 (kr. 350.000kr. / 153,86) þannig verða orlofsstundir á mánuði eftir 1. janúar 2020 17,88 stundir (400.000 kr. x 10,17% / 2.274,79). Yfir orlofsárið gæti þessi maður t.d. hafa áunnið sér samtals 200,75 orlofsstundir (11 mán. x 18,25 st.). Þegar hann fer í orlof sumarið 2020 hafa laun hans hækkað og er tímakaup hans orðið 2.391,78 kr. (mánaðarlaun hafa hækkað um 18.000 kr., þ.e. frá 1. apríl skv. samningi og reiknast þá 368.000 kr./153,86 sem er ný deilitala frá 1. janúar 2020). Orlofslaun launþegans verða því 480.151 kr. (200,75 orlofsstundir x 2.391,78 kr. pr. klst.).

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==