Kjarasamningur milli VR/LÍV og Félags atvinnurekanda

30 6. AÐBÚNAÐUR OG HOLLUSTUHÆTTIR 6.1. Læstar hirslur, lyfjakassi, hreinlætis- og kaffiaðstaða Á vinnustað skal starfsmaður hafa aðgang að læstum hirslum eða öðrum tryggum geymslustað þar sem hann getur geymt persónulega muni meðan á vinnu stendur. Á vinnustöðum skulu vinnuveitendur sjá um að lyfjakassi sé á staðnum með nauðsyn legum lyfjum og umbúðum, svo og salerni, vatn og vaskur. Á öllum vinnustöðum skal vera aðstaða til kaffidrykkju og geymslu á hlífðarfötum. 6.2. Reglur ummatstað Þegar að jafnaði er matast á vinnustað skulu bæði vinnuveitendur og starfsfólk fylgja fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda um aðbúnað, hreinlætisaðstöðu og umgengni á matstað. 6.3. Öryggisbúnaður Á vinnustöðum skal vera fyrir hendi, til afnota fyrir starfsfólk, sá öryggisbúnaður sem Vinnueftirlit ríkisins telur nauðsynlegan vegna eðlis vinnunnar eða tiltekinn er í kjarasamningi. Starfsfólki er skylt að nota þann öryggisbúnað sem getið er um í kjarasamningum og reglugerðum og skulu verkstjórar og trúnaðarmenn sjá um að hann sé notaður. 6.3.1. Viðurlög við vanrækslu starfsmanns Ef starfsfólk notar ekki öryggisbúnað sem því er lagður til á vinnustað er heimilt að vísa því fyrirvaralaust úr starfi eftir að hafa aðvarað það skriflega. Trúnaðarmaður starfsfólks skal tafarlaust ganga úr skugga um að tilefni uppsagnar hafi verið fyrir hendi og skal honum gefinn kostur á að kynna sér alla málavexti. Sé hann ekki samþykkur tilefni uppsagnarinnar skal hann mótmæla henni skriflega og kemur þá fyrirvaralaus uppsögn eigi til framkvæmda. Brot á öryggisreglum sem valda því að lífi og limum starfsmanna er stefnt í voða skulu varða brottvikningu án undangenginna aðvarana ef trúnaðarmaður og forsvarsmaður fyrirtækis eru sammála um það. 6.3.2. Viðurlög við vanrækslu vinnuveitanda Ef öryggisbúnaður sá sem tiltekinn er í kjarasamningum og Vinnueftirlit ríkisins hefur gefið fyrirmæli um að notaður skuli er ekki fyrir hendi á vinnustað er hverjum þeim starfsmanni er ekki fær slíkan búnað heimilt að neita að vinna við þau störf þar sem slíks búnaðar er krafist. Sé ekki um annað starf að ræða fyrir viðkomandi starfsmann skal hann halda óskertum launum.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==