Kjarasamningur milli VR/LÍV og Félags atvinnurekanda

33 8. VINNUSLYS, SLYSATRYGGINGAR, ATVINNUSJÚKDÓMAR OG GREIÐSLA LAUNA Í SLYSA- OG VEIKINDATILFELLUM 8.1. Vinnuslys og atvinnusjúkdómar 8.1.1. Sjúkrakostnaður Hvað varðar sjúkra-og flutningskostnað teljast slys á beinni leið til og frá vinnu til vinnu- slysa. Við vinnuslys kosti vinnuveitandi flutning hins slasaða til heimilis eða sjúkrahúss og endurgreiði honum eðlilegan útlagðan sjúkrakostnað í hverju tilfelli, annan en þann sem almannatryggingar eða slysatrygging launþega greiða. Skýring Óvinnufærni af völdum slyss getur hvort heldur komið fram strax eftir slys eða síðar. Um sönnun og orsakatengsl fer samkvæmt almennum reglum. 8.1.2. Launagreiðslur í vinnuslysa- eða atvinnusjúkdómstilfellum Í hverju vinnuslysa- eða atvinnusjúkdómstilfelli sem orsakast við vinnuna eða af henni eða vegna flutnings til og frá vinnustað greiði viðkomandi vinnuveitandi laun í allt að 3 mánuði skv. þeim launum sem starfsmaður er á þegar slys eða sjúkdóm ber að, enda gangi dagpeningar frá Tryggingastofnun ríkisins vegna þessara daga til vinnuveitanda. Ákvæði þessarar málsgreinar rýra ekki frekari rétt starfsmanna sem þeir kunna að eiga skv. lögum eða öðrum kjarasamningum. - Sjá lög nr. 19/1979 um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla. 8.2. Laun í veikinda- og slysaforföllum 8.2.1. Laun í veikinda- og slysaforföllum á fyrsta ári Launagreiðslum til starfsmanna í veikindaforföllum þeirra hjá sama vinnuveitanda skal á fyrsta ári haga þannig að tveir dagar greiðast fyrir hvern unninn mánuð. Forföll vegna lýtaaðgerða eða sem leiða af atvikum sem starfsmaður á sjálfur sök á teljast ekki veikindaforföll. [Yfirlýsing dags. 5. mars 1997: Vegna þeirrar umræðu sem orðið hefur um viðbótarákvæði við grein 8.2.1. um greiðslu launa í veikinda- og slysaforföllum í kjarasamningi FA og VR/LÍV, sem undirritaður var 1. mars 1997, er rétt að taka fram að aðilar eru sammála um að þetta ákvæði skerði á engan hátt forfalla- og/eða veikindarétt starfsmanna né takmarkar greiðslu- skyldu vinnuveitanda skv. síðastgildandi kjarasamningi. Þetta ákvæði er hugsað til þess að fækka vafa- og ágreiningsatriðum sem verið hafa í veikinda- og slysaforföllum, sem þurft hefur að útkljá fyrir dómstólum.]

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==