Kjarasamningur milli VR/LÍV og Félags atvinnurekanda

34 8.2.2. Laun í veikinda- og slysatilfellum eftir eitt ár Launagreiðslu til starfsmanna í veikindaforföllum þeirra sem unnið hafa hjá sama vinnuveitanda í 1 ár eða meira skal haga þannig: - Eftir 1 árs starf hjá sama vinnuveitanda, 2 mánuði á hverjum 12 mánuðum, - eftir 5 ára starf hjá sama vinnuveitanda, 4 mánuði á hverjum 12 mánuðum, - eftir 10 ára starf hjá sama vinnuveitanda, 6 mánuði á hverjum 12 mánuðum. Skýring Veikindaréttur miðast við greidda veikindadaga á 12 mánaða launatímabili. Þegar starfs- maður verður óvinnufær er við upphaf veikinda litið til þess hversu margir dagar hafa verið greiddir á síðustu 12 launamánuðum og dragast þeir frá áunnum veikindarétti. Hafi starfsmaður verið launalaus á tímabili telst það tímabil ekki með við útreikning. Þó skal starfsmaður sem áunnið hefur sér réttindi til 4 eða 6 mánaða launagreiðslna í veikindaforföllum hjá síðasta vinnuveitanda og skiptir um vinnustað eiga rétt til launa- greiðslna um eigi skemmri tíma en í 2 mánuði á hverjum 12 mánuðum. 8.3. Læknisvottorð Ef starfsmaður veikist og getur af þeim sökum eigi sótt vinnu skal hann þegar tilkynna það yfirboðara sínum sem ákveður hvort læknisvottorðs skuli krafist. Starfsmaður getur valið að fara í skoðun til heimilislæknis eða sérfræðings, að eigin vali í stað trúnaðarlæknis fyrirtækisins. Trúnaðarlæknirinn getur leitað upplýsinga hjá heimilis- lækni eða sérfræðingi. 8.3.1. Greiðsla læknisvottorðs Vinnuveitandi endurgreiði starfsmanni öll þau gjöld, sem hann greiðir lækni eða heilsugæslu til að afla umbeðins læknisvottorðs sé framangreindum skilyrðum fullnægt. 8.4. Mæðraskoðun Barnshafandi konur eiga rétt til nauðsynlegra fjarvista frá vinnu vegna mæðraskoðunar án frádráttar á föstum launum þurfi slík skoðun að fara fram í vinnutíma. - Sjá grein 4.7. um fæðingarorlof. - Sjá lög nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof. 8.5. Fjarvistir vegna veikinda barna Á fyrsta starfsári hjá sama vinnuveitenda skal foreldri heimilt að verja tveimur dögum fyrir hvern unninn mánuð, þó að hámarki 12 daga á hverjum 12 mánuðum, til aðhlynningar sjúkum börnum sínum undir 13 ára aldri, enda verði annarri umönnun ekki við komið og halda þá dagvinnulaunum sínum, svo og vaktaálagi þar sem það á við.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==