Kjarasamningur milli VR/LÍV og Félags atvinnurekanda

37 8.6.6. Bætur vegna tímabundinnar örorku Valdi slys tímabundinni örorku skal trygging greiða dagpeninga í hlutfalli við starfsorku- missinn fjórum vikum frá því slys átti sér stað og þar til starfsmaður verður vinnufær eftir slysið eða þar til örorkumat hefur farið fram, þó ekki lengur en í 37 vikur. Dagpeningar vegna tímabundinnar örorku eru 40.949 kr. á viku. Ef starfsmaður er vinnu- fær að hluta greiðast dagpeningar hlutfallslega. Dagpeningar úr tryggingu greiðast til atvinnurekanda meðan starfsmaður fær greidd laun samkvæmt kjarasamningi eða ráðningarsamningi en síðan til starfsmanns. 8.6.7. Tryggingar atvinnurekenda Öllum atvinnurekendum ber að kaupa tryggingu hjá tryggingafélagi með starfsleyfi hér á landi sem fullnægir ofangreindum skilyrðum kjarasamningsins um slysatryggingar. Að öðru leyti en tiltekið er í þessum kafla samningsins skulu gilda um trygginguna skil- málar viðkomandi tryggingafélags og ákvæði laga um vátryggingarsamninga nr. 30/2004. 8.6.8. Gildistími bótafjárhæða Ofangreind ákvæði um slysatryggingar og nýjar bótafjárhæðir taka til slysa sem verða eftir 1. apríl 2019.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==