Fréttablað Eflingar 2. tbl. 2019

22 F R É T TA B L AÐ E F L I N G A R - S T É T TA R F É L AG S Námskeið og dómsmál Kennt: Mið.13. , þri. 19. og fim. 21. mars frá kl.18:00–21:00. Skráningafrestur til og með 8. mars Kennsla fer fram hjá Eflingu-stéttarfélagi, Guðrúnartúni 1, 4. hæð. Skráning hjá Eflingu í síma 510 7500 eða á efling@efling.is Leiðbeinandi: Björg Árnadóttir, rithöfundur, blaðamaður og ritlistakennari. Að fá athygli – skapandi skrif Lýsing: Viltu koma þekkingu þinni og viðhorf- um á framfæri í rituðu máli? Námskeiðið er í formi fyrirlestra en snýst þó einkum um stutt- ar ritunaræfingar sem lagðar eru fyrir þátttak- endur og umræður um þær. Markmiðið er að þátttakendur læri að skrifa betri greinar og færslur, verði dómbærari á skrif annarra og meðvitaðri um eigin skoð- anaskrif. Fái tækifæri til að endurspegla viðfangsefni sín og efnistök með öðru fólki og fræðist jafnframt um ólíkar leiðir til að skrifa og birta skrif sín. Námskeiðið er þrjú skipti. Björg Árnadóttir Skemmtilegt og gagnlegt námskeið – Um að gera að skrá sig! Félagsmaður Eflingar sýknaður Í seinustu viku var kveðinn upp dómur í máli Alþjóðlegra bifreiðatrygginga á Íslandi gegn félagsmanni Eflingar, Davíð Eiríki Guðjóns- syni. Davíð sem starfaði hjá JH verki ehf. lenti í árekstri á vinnutíma á bifreið í eigu fyrirtæk- isins. Davíð var í órétti og bíllinn sem hann ók var óvátryggður. Af þeim sökum kom það í hlut Alþjóðlegra bifreiðatrygginga á Íslandi sf. (ABI), sem er í eigu íslenskra vátrygginga- félaga, að borga tjónið á bifreiðinni sem Davíð keyrði á. ABI beindi í framhaldi endur- kröfu að Davíð sem ökumanni bifreiðarinn- ar. Undir venjulegum kringumstæðum hefði endurkröfu verið beint að JH verki ehf. eiganda bílsins, en þar sem félagið var orðið gjaldþrota var kröfunni beint að Davíð sem ökumanni. Davíð sem leitaði til lögmanna Eflingar var í síðustu viku sýknaður af kröfum ABI og félagið dæmt til að greiða tæpar 1,1 milljón króna í málskostnað. ABI var í aðdraganda málsóknarinnar ítrekað hvatt til þess að falla frá kröfunni, án árangurs. Dómurinn féllst á röksemdir stefnda í málinu og telur engar forsendur vera til þess að starfsmaðurinn eigi að bera tjónið. Vísar dómurinn í því sambandi til 2., sbr. 1. mgr. 23. gr. skaðabóta- laga og metur það sanngjarnt að skaðabóta- ábyrgð Davíðs verði felld niður. Karl Ó. Karlsson, lögmaður Eflingar segir mikilvægt að búið sé að fá úr því skorið fyrir dómi að ekki sé hægt að beina kröfu að starfsmanni undir þessum kringumstæð- um, enda séu eflaust margir starfsmenn sem keyri um á bifreiðum í eigu vinnuveit- anda vinnu sinnar vegna, óafvitandi um að bifreiðarnar séu óvátryggðar. Niðurstaða fengin í dómsmáli

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==