Fréttablað Eflingar 6. tbl. 2019

4 F R É T TA B L AÐ E F L I N G A R - S T É T TA R F É L AG S Staða samningaviðræðna Staða samningaviðræðna við Reykjavík, ríki og sveitarfélög Frá því að deilunni við Reykjavíkurborg var vísað til ríkissáttasemjara hafa nokkrir formlegir fundir átt sér stað. Örlítið hefur þokast áfram í viðræðum og samtal um kröfugerð Eflingar náðst þó að lending sé ekki í sjónmáli. Auk formlegu fundanna með ríkissáttasemjara hefur verið fundað í undirhópi um starfsumhverfi á vinnu­ stöðum borgarinnar. Stefnt er að fleiri fundum á næstu vikum. Samband íslenskra sveitarfélaga ákvað einhliða að vísa yfirstandandi kjaradeilu til ríkissáttasemjara þann 28. október sl. Ástæðan sem tilgreind var er ályktun sem samþykkt var í tilefni af kvennafrídeginum á nýstöðnu þingi SGS. Þar var meðal annars fjallað um stöðu ófaglærðra verkakvenna og stöðuna í kjaradeilunni. Ljóst er að þessi málatilbúnaður sveitarfélaganna stuðlar með engu móti að lausn deilunnar. Ekki hefur þótt ástæða til að vísa viðræð- um við ríkið til ríkissáttasemjara þar sem náðst hefur samtal á milli aðila þó gang- ur viðræðna sé hægur. Settur var á stofn undirhópur, þar sem fulltrúi Eflingar á sæti, sem hefur skilað tillögum að breytingum á kjarasamningi vegna vaktavinnu. Ætlunin er að halda þeirri vinnu áfram en samn- ingar þurfa að þokast lengra áður en það er hægt. Kjarasamningar hjá einkareknum hjúkr­ unarheimilum hafa tekið mið af hvað semst við ríkið og er beðið eftir niðurstöðu þar áður en gengið er til samningaviðræðna við hjúkrunarheimilin. Ekkert á sjóndeildarhringnum bendir til þess að samningar náist fljótt. Flestir starfsmenn hins opinbera hafa feng- ið greidda innágreiðslu á væntanlegan kjarasamning að upphæð 105 þús. kr. hjá Reykjavíkurborg og ríkinu og 125 þús. kr. hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Það er sameiginlegur skilningur aðila að sú fjár- hæð sé hluti fyrirhugaðra launabreytinga á gildistíma hinna endurnýjuðu kjarasamn- inga aðila og verði metinn sem hluti af kostnaðaráhrifum þeirra. Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==