Júlí 2019 4. tölublað 24. árgangur

6 F R É T TA B L AÐ E F L I N G A R - S T É T TA R F É L AG S Kjaramálin Samningar 2019 Staða viðræðna við hið opinbera Viðræður Eflingar og Starfsgreinasambands- ins við Samband íslenskra sveitarfélaga um nýjan kjarasamning hafa staðið yfir undan- farnar vikur og hafa aðilar átt fimm formlega fundi. Þeim viðræðum hefur nú verið vísað til ríkissáttasemjara. Verkalýðsfélögin hafa krafist þess að Samband íslenskra sveitarfé- laga efni loforð um jöfnun lífeyrisréttinda fyrir starfsfólk sveitarfélaga innan aðildarfélaga ASÍ, sem gefin voru við undirritun síðustu kjarasamninga árið 2015. Um þessi sjálfsögðu réttindi hefur þegar verið samið við Reykja- víkurborg og ríkið. Þau greiða sérstakan lífeyrisauka sem nemur 5,91%. Þetta samsvar- ar tæpum 18 þúsund krónum á mánuði fyrir fólk á lægstu launum. Það kom því mjög á óvart þegar fulltrúar sveitarfélaganna neituðu með öllu að ræða þessa eðlilegu jöfnun. Í síðustu kjarasamn- ingum voru sérstaklega tekin frá 1,5% til að jafna lífeyrisréttindin. Það er því ólíðandi að sveitarfélögin haldi að þau komist upp með að hafa af félagsmönnum okkar, láglaunafólki í undirstöðustörfum velferðarkerfisins, þessar lífeyrisgreiðslur. Efling og Starfsgreinasambandið höfðu því engan annan kost en að vísa deilunni til ríkis- sáttasemjara. Af hálfu Eflingar og Starfs- greinasambandsins kemur ekki til greina að halda viðræðum áfram nema að lífeyris- réttindi starfsfólks sveitarfélaganna innan ASÍ verði jöfnuð í samræmi við fyrri loforð. Ríkissáttasemjari hefur boðað deiluaðila næst til fundar 21. ágúst. Samband íslenskra sveitarfélaga Efling og Starfsgreinasambandið hafa setið átta fundi með forsvarsmönnum ríkisins, en skemmst er frá því að segja að ekkert hefur þokast í viðræðum um nýjan kjarasamning. Gengið hefur verið frá samkomulagi við ríkið um að félagsmenn fái 105.000 kr. fyrirfram- greiðslu 1. ágúst vegna væntanlegrar launa- hækkunar, miðast upphæðin við fullt starf og verður kjaraviðræðum frestað fram til miðjan ágúst. Samkomulagið hljóðaði upp á að gengið verði frá samningum fyrir 15. september. Rætt hefur verið um styttingu vinnuvikunn- ar. Stéttarfélögin leggja mikla áherslu á að í þessum samningum náist raunstytting á vinnutíma. Tilraunaverkefni yfirvalda hafa sýnt að vellíðan, heilsa og vinnuumhverfi batni verulega við slíka styttingu. Samninganefnd Eflingar telur því augljóst að hér komi ekki til greina að slá af kröfum. Ríkið Efling hefur setið nokkra fundi með Reykja- víkurborg. Enginn árangur hefur náðst sem hönd er á festandi. Samninganefnd Eflingar er ekki vongóð að sú nálgun sem ríkt hefur á fundum skili árangri. Það hefur komið samninganefnd Eflingar verulega á óvart að sjá afstöðu borgarinnar til styttingar vinnuvikunnar. Væntingar stóðu til þess að um raunstyttingu á vinnutíma væri að ræða, enda hefur Reykjavíkurborg verið í fararbroddi tilraunaverkefnis um þannig styttingu, með mjög góðum árangri. Þess- um árangri hefur Reykjavíkurborg hampað á málþingum og fundum. Einnig má nefna að í aðdraganda síðustu borgarstjórnarkosninga töluðu allir flokkar sem nú sitja í meirihluta fyrir raunstyttingu vinnuvikunnar. Í krafti þeirra loforða til starfs- manna og íbúa borgarinnar fara þessir flokkar nú með völd í borginni. Reykjavíkurborg Samningar runnu út 31. mars og Efling hefur kappkostað að ná nýjum samningum sem fyrst. Það hefur valdið okkur mikl- um vonbrigðum að finna hversu langt er á milli okkar og viðsemjenda okkar. Við búum okkur undir að samningaviðræður dragist fram á haust. Við skorum á viðsemjendur okkar að mæta á komandi samningafundi með það að markmiði að mæta kröfum okkar, svo hægt verði að ganga frá raunstyttingu vinnuvikunnar og launahækkunum sem allra fyrst.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==