Efling Ársskýrsla 2019
11 ALDREI VERIÐ FLEIRI LAUNAKRÖFUR EFTIR HRUN Það er oft mikið álag á kjaramálafulltrúum Eflingar enda mörg málin sem koma inn á þeirra borð. Sum þeirra eru einföld á meðan önnur eru flóknari og krefj- ast mikillar yfirlegu. Í kjaraviðræðunum sem stóðu allt fram í byrjun apríl á þessu ári var álagið mikið, bæði á þeim fulltrúum sem stóðu í viðræðum og eins þeim sem stóðu vaktina á skrifstofu félagsins. Félagið hélt samt alltaf úti þjónustu þó hún hafi verið með skertum hætti nokkra daga og því gátu félagsmenn Eflingar ávallt leit- að til fulltrúa á skrifstofu félagsins. Aukið álag má einnig sjá með því að skoða heildarfjölda launakrafna á síðasta starfsári en sífellt fjölgar þeim launakröfum sem Efling stéttarfélag gerir fyrir sína félagsmenn. Í veitingageiranum virðist komin hefð fyrir því að borga ekki rétt laun. Launafólk er markvisst svik- ið um laun, einhverjir leita réttar síns og fá leiðréttingu en margir gera ekki athugasemd og þá er fyrirtækið farið að hagnast á þessu háttalagi. Krafa Eflingar um að sektir fylgdu því að brjóta kjara- samning eða svíkja laun náðist ekki í gegn í viðræðum við SA en mun vera á borði stjórnvalda. Bréf send út frá kjaramáladeild voru 734 árið 2018 með ýmsum athugasemdum t.d. vegna fyrirvaralausr- ar uppsagnar eða framkomu yfirmanna. Launakröfur voru 550 á móti 469 kröfum árið áður sem þó var mikil aukning. Meðaltalskrafan var upp á 423 þúsund krónur sem er örlítið lægri upphæð en 2017 þegar meðaltalskrafan var upp á 470 þúsund kr. Það er ljóst eins og áður að það sárvantar viðurlög við launaþjófnaði. Í dag er staðan sú að síbrotafyrirtækin stunda launaþjófnað án þess að bera nokkurn skaða af og reyndar hagnast þau á þessu í einhverjum tilfellum. Það er óviðunandi. Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2016 2017 2018 Áhyggjur af fjárhagslegri stöðu – þróun milli ára Mjög miklar Frekar miklar Hvorki né Frekar litlar Mjög litlar Engar áhyggjur 10,0% 10,6% 6,8% 6,2% 9,2% 5,9% 4,3% 3,9% 4,9% 8,5% 8,0% 4,4% 7,2% 12,2% 29,4% 29,7% 17,2% 8,5% 18,4% 30,0% 22,9% 12,2% 7,8% 15,9% 28,4% 25,1% 14,3% 12,8% 26,3% 31,0% 21,2% 5,4% 14,4% 21,0% 33,7% 29,0% 25,4% 13,0% 13,8% 27,2% 27,0% 21,2% 17,5% 19,0% 21,9% 20,8% 31,9% 29,4% 19,2% 14,9% 4,0% 17,8% 16,0% 3,5%
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==