Efling Ársskýrsla 2019
10 Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9 og eru þeir langflestir yngri en 24 ára. Eftir standa 4% sem er í annars konar búsetu. Hlutfall leigjenda er hæst á meðal þeirra sem eru á aldrinum 25 til 45 ára eða um og yfir helmingur þeirra félaga. Jafnframt er hlutfall þeirra sem svara könnuninni á erlendu tungumáli miklu hærra eða 68% þeirra sem svara á pólsku og 79% á meðal þeirra sem svara á litháísku. ÁHYGGJUR AF FJÁRHAGSSTÖÐU AUKAST HJÁ FLESTUM HÓPUM Versnandi staða lægstu tekjuhópanna kemur berlega fram í svörum við spurningu um fjárhagsáhyggjur þar sem hlutfall þeirra sem hafa „miklar áhyggjur“ af fjár- hagsstöðu sinni eykst mikið eða úr 35% í 47% frá því í fyrra. Núverandi hlutfall er á svipuðu róli og árið 2014, fyrir síðustu kjarasamninga. Áhyggjurnar eru mestar meðal þeirra sem lægst hafa launin og 22% félaga hafa lent í erfiðleikum við að standa skil á afborgunum lána á síðustu 12 mánuðum. MARGT FLEIRA ATHYGLISVERT Í KÖNNUNINNI Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar og settar í samhengi við kröfugerð Starfsgreinasambandsins á Gerðubergsfundi Eflingar laugardaginn 1. desember. UM KÖNNUNINA Markmiðið var að kanna kjör og viðhorf félags- manna Eflingar. Könnunin var framkvæmd af Gallup fyrir Eflingu- stéttarfélag í september og október 2018. Síma og netkönnummeðal félagsmanna með íslensk- um, pólskum og enskumælandi spyrlum. Úrtak 2932 einstaklinga en svarendur alls 1016 og svarhlutfall 34,7%. Eigin húsnæði Leiguhúsnæði Foreldrahúsum Húsnæði á vegum fyrirtækisins Býr annars staðar 1,6% 2,2% 15,9% 39,9% 40,4% Hvar býr félagsfólk Eflingar? VINNUTÍMINN LENGIST AÐ MEÐALTALI Heildarvinnutími félagsmanna í fullu starfi er 46,8 klst. að meðaltali og hefur lengst um tæpa klukku- stund milli ára. Karlar í fullu starfi vinna 5 klst. lengur en konur á viku, að meðaltali 48,6 klst. á viku. Vinnutíminn er lengstur hjá bílstjórum eða 54,2 klst. að meðaltali. Leiðbeinendur á leikskólum og frí- stundaheimilum vinna aftur á móti stysta vinnuviku eða 40,6 klst. að meðaltali í fullu starfi. SAMSTAÐA UM ÁHERSLU Á HÆKKUN LÆGSTU LAUNA Yfirgnæfandi hluti félaga, eða 93,5%, var sam- mála því að leggja sérstaka áherslu á hækk- un lægstu launa í komandi kjaraviðræðum. Stuðningur við þá áherslu er heldur meiri nú en fyrir síðustu kjarasamninga þar sem 66% eru henni nú algerlega sammála miðað við 58% árið 2014. Í samræmi við þessi viðhorf vilja 81% félaga að samið sé um krónutöluhækkanir í komandi viðræðum og þ.a.l. hlutfallslega meiri hækkanir til handa láglaunafólki. ERLENDIR FÉLAGSMENN Undanfarin ár hefur félagsmönnum verið gert kleift að svara viðhorfskönnun Gallup á ensku og pólsku, auk íslensku og í ár var litháísku bætt við sem val- kosti. Um 23% svarenda kaus að svara á pólsku, 12,5% á ensku og 5% á litháísku – alls 40%. Ágætlega hefur því gengið að ná til erlendra félagsmanna en hlutfall þeirra hjá Eflingu er nú 48,5% og hefur vaxið frá síðasta áriHlutfall erlendra félagsmanna er þó hærra og hefur haldið áfram að aukast frá síðasta ári. Hjá Eflingu er hlutfall félagsmanna af erlendum uppruna nú 48,5% en var 45% í fyrra. Erlendir félagsmenn hafa alla jafna styttri starfs- aldur en félagsmenn af íslenskum uppruna sem er ein ástæða þess að erfiðara getur verið að ná til þess hóps. En auk þess búa erlendir félagsmenn almennt við mun ótryggari búsetuskilyrði, flytja t.a.m. oftar og þ.a.l. er erfiðara að ná til þeirra í könnunum. Stéttarfélögin telja mjög mikilvægt að fá upplýsingar um kjör og aðbúnað félagsmanna sinna. Einn liður í því er að greina hvort aðbúnaður og kjör erlendra félagsmanna séu frábrugðin félagsmanna af íslensk- um uppruna. HLUTFALL LITHÁÍSKU- OG PÓLSKUMÆLANDI Í LEIGUHÚSNÆÐI MUN HÆRRA Um 40% félagsmanna Eflingar búa í eigin húsnæði og önnur 40% í leiguhúsnæði. 16% búa í foreldrahúsum
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==