Efling Ársskýrsla 2019

að ræða aðrar tillögur. Uppstillingarnefnd lagði í til- lögum sínum áherslu á að hópar félagsmanna séu sem best endurspeglaðir með hliðsjón af aldri, uppruna, starfsgrein, kyni og fleiri þáttum. Starfsárið einkenndist af aukinni virkni félagsmanna. Trúnaðarráð fundaði reglulega um haustið og á nýju ári tók við nýtt og endurnýjað trúnaðarráð. Fundir ráðsins voru tólf talsins á starfsárinu, þar af tveir sameiginlegir trúnaðarráðs- og félagsfundir. Á fyrstu fundum nýs trúnaðarráðs fór fram ítarleg umræða um vinnubrögð og starfshætti og er sú umræða enn í mótun. Þegar hefur verið tekið upp nýtt fundafyrir- komulag þar sem fundarstjórn og mótun dagskrár er í höndum félagsmanna sjálfra fremur en formanns eða starfsfólks skrifstofunnar. Hefur þetta fyrirkomulag mælst ágætlega fyrir þótt það sé enn í þróun. KJARAVIÐRÆÐUR OG VERKFALLSAÐGERÐIR Kjaraviðræður við Samtök atvinnulífsins hófust á haustdögum að undangenginni vinnu við smíði kröfugerðar. Félagsmenn Eflingar smíðuðu sína eigin kröfugerð en þegar samningsumboð var veitt til Starfsgreinasambandsins gekk kröfugerð Eflingar að stórum hluta inn í sameiginlega kröfugerð SGS félag- anna. Tóku samninganefndarmenn Eflingar þátt í starfi undirhópa innan SGS um samninga og samn- ingskafla einstakra starfsgreina. STARF STJÓRNAR OG FÉLAGSLEG VIRKNI Ný stjórn tók við að loknum aðalfundi í lok apríl 2018 og fundaði eftir það reglulega samkvæmt fundaráætl- un. Fundir stjórnar á starfsárinu 2018-2019 voru 20 talsins og fóru yfirleitt fram í stjórnarsal á 3. hæð í Guðrúnartúni undir stjórn formanns. Stjórn setti sér starfsreglur þann 23. ágúst 2018 varðandi fundar- ritun, fundarboðun og meðhöndlun fundargerða. Sú nýbreytni var tekin upp í byrjun starfsársins að vera með túlk á öllum fundum stjórnar og eru fundargerðir einnig þýddar á ensku. Stjórn fjallaði um fjölda mála, sendi frá sér ályktanir og fjallaði um ýmsar umbætur í starfi félagsins. Vinnufundur stjórnar var haldinn þann 15. nóvember og þann 16. nóvember var sameiginlegur vinnufundur stjórnar og starfsdagur skrifstofu. Á þessum fund- um voru haldnar ýmsar kynningar, m.a. varðandi styttingu vinnutímans, kynningarmál Eflingar, fjöl- menningu og fleira. Uppstillingarnefnd vann gott starf í samvinnu við formann og starfsfólk félagssviðs, og aðstoðaði hún við að stilla upp stórum hópum félagsmanna til setu í trúnaðarráði, samninganefnd og fulltrúaráði Gildis en þetta eru stærstu nefndir félagsins. Voru tillögur uppstillingarnefndar yfirleitt bornar upp á fundum trúnaðarráðs og stjórnar til samþykkis og var ekki um 5 Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9 STARF STJÓRNAR Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri félagsins í upphafi starfsársins

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==