Efling Ársskýrsla 2019

48 Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9 BARÁTTUDAGURINN 1. MAÍ Það var mikill hugur og baráttuandi í fólki sem fór í kröfugöngu þann 1. maí 2018 en hin formlega dag- skrá hófst að venju á Ingólfstorgi laust eftir kl. 14:00. Gangan var fjölmenn og gekk fólk niður Laugaveginn við tóna Lúðrasveitar verkalýðsins og Svansins. Þó nokkuð kalt væri í veðri var engu að síður veðurblíða og fólk hlýddi á ræður dagsins og skemmti sér við tón- listarflutning Heimilistóna og Síðan skein sólar. Að venju var Eflingarfélögum boðið að lokinni göngu og útifundi í kaffi í Valsheimilinu þar sem mikið fjöl- menni kom saman. FRAMTALSAÐSTOÐ Í BOÐI EFLINGAR Framtalsaðstoð var að venju boðin félagsmönnum Eflingar helgina 9. og 10. mars 2019. Það hefur dregið úr ásókn í framtalsaðstoðina á síðustu árum eftir því sem auðveldara varð að skila framtalinu rafrænt. Engu að síður er þetta mikilvæg aðstoð sem félagið veitir og enn margir sem sækja í hana. Sem fyrr var það Karl Ó. Karlsson, lögmaður Eflingar, sem hafði umsjón með aðstoðinni við skattframtölin. ÁTAK Í KYNNINGARMÁLUM EFLINGAR Óhætt er að segja að Efling hafi lyft grettistaki þegar kemur að kynningarmálum félagsins. Hefur félagið verið mun meira áberandi í allri opinberri umræðu og oft á tíðum leitt slíka umræðu. Félagið hefur haldið á lofti mikilvægum málum sem snerta allt launafólk og lagt sig fram við að gera félagsmenn sýnilega í barátt- unni um betra líf. Hefur félagið efnt til fjölda funda, bæði hefðbundinna vinnustaðafunda og umræðufunda, þar sem farið er yfir mál sem brenna á fólki. Fólkið í Eflingu Fólkið í Eflingu er ljósmyndaverkefni þar sem Eflingar­ fólk er sýnt við störf og tekin við þau stutt viðtöl. Það er Alda Lóa Leifsdóttir blaðamaður og ljósmyndari sem vann þetta glæsilega verkefni. Efling kom upp vefsíðu undir yfirskriftinni Fólkið í Eflingu – folkid. efling.is - þar sem er að finna tugi stuttra frásagna félagsmanna. Fólkið í Eflingu hlaut tilnefningu til Íslensku vef- verðlaunanna í flokki samfélagsvefja. Sögurnar hafa vakið mikla athygli og eiga sinn þátt í að efla vitund FÉLAGSMÁL Á baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí 2018

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==