Efling Ársskýrsla 2019
50 Reykvíkinga var leystur áður fyrr. Erindið var einstak- lega vandað og fróðlegt, og gaf áhugaverða mynd af þeim lærdómi sem draga má af sögunni varðandi hag- kvæmar lausnir í húsnæðismálum. Er verið að svindla á þér? – 6. október Samninganefnd Eflingar-stéttarfélags bauð til næsta fundar í Gerðubergi. Á fundinum deildu starfsmenn á gisti- og veitinga- húsum og kjarafulltrúar Eflingar reynslu sinni og tóku við spurningum úr sal. Er þetta mikilvægt málefni þar sem Efling gerir allt að 600 launakröfur á hverju ári til atvinnurekenda vegna brota á kjarasamningum starfs- fólks. Stór hluti þeirra sem verða fyrir slíkum brotum starfar á gisti- og veitingahúsum. Fundurinn vakti athygli fjölmiðla sem gerðu málinu skil. Stéttaskipting í grunnskólum – 13. október Fundurinn 13. október var á samræðuformi líkt og fundurinn um stéttaskiptingu. Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Eflingar ræddi við Berglindi Rós Magnúsdóttur dósent við Menntavísindasvið HÍ um ójöfnuð og misskiptingu í menntakerfinu. Víða erlendis hefur efnahagsleg misskipting og markaðs- og einkavæðing í skólakerfinu ýtt undir félagslega og menningarlega aðgreiningu í menntakerfum. Berglind fór yfir hver staðan væri á Íslandi en rannsóknir henn- ar gefa til kynna að slík aðgreining fari vaxandi. Skattbyrði og skerðingar: Sameiginlegur fundur með ÖBÍ – 20. október Efling og Öryrkjabandalagið efndu til sameiginlegs fundar um afkomu lágtekjufólks á Íslandi, sérstaklega út frá skattbyrði og skerðingum. Framsögu flutti Stefán Ólafsson, sérfræðingur hjá Eflingu. Að því búnu voru pallborðsumræður með Þuríði Hörpu Sigurðardóttur formanni ÖBÍ, Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar og Bergþóri Heimi Þórðarsyni öryrkja og dyra- verði. Fundarstjóri var Ingimar Karl Helgason sam- skiptastjóri ÖBÍ. Fundurinn var gríðarvel sóttur og vakti athygli fjölmiðla. Velsæld á grunni misnotkunar? Gerðubergsfundur Eflingar um brotastarfsemi á vinnumarkaði – 27. október Efling hélt því næst fund um brotastarfsemi á íslenskum vinnumarkaði þar sem María Lóa Friðjónsdóttir, sér- fræðingur í vinnustaðaeftirliti hjá ASÍ, hélt kynningu. Að því búnu sögðu félagsmenn Eflingar sem lent hafa í kjarasamningabrotum frá reynslu sinni. Kröfurnar okkar! Við viljum hærri laun, færri vinnutíma og vinnulýðræði – 3. nóvember Fjallað var á fundinum um kröfugerðir Eflingar og SGS. Fundurinn var hugsaður fyrir Eflingarfélaga af erlendum uppruna en opinn öllum og var hann haldinn á ensku. Boðið var upp á textatúlkun á íslensku á skjá á meðan á fundi stóð.Félagar úr stjórn Eflingar, Jamie Félagsmenn spjalla á félagsfundi Eflingar í september sl. Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==