Efling Ársskýrsla 2019
51 McQuilkin og Anna Marjankowska, ásamt sviðsstjóra félagssviðs Eflingar, Maxim Baru, ræddu við gesti um komandi kjarasamningaviðræður. Verkalýðsbarátta í tengihagkerfinu: Verktakar sameinist! – 10. nóvember Erfiðleikar sem verktakar, undirverktakar og lausa- vinnufólk mætir í tengihagkerfinu voru í brennidepli á þessum fundi þar sem erlendur gestur, Gabrielle Jeliazkov, flutti kynningu. Gabrielle er með mikla reynslu af verkalýðsbaráttu bílstjóra og veitingahúsa- starfsmanna á Bretlandi og varpaði ljósi á þau vanda- mál sem upp koma og hvernig má leysa þau. Fundurinn var á ensku en textatúlkun á íslensku á skjá. Kjör láglaunakvenna: Óásættanlegur raunveruleiki – 24. nóvember Í lok nóvember boðaði Efling til fundar með Hörpu Njáls félagsfræðingi sem er þekkt fyrir rannsóknir sínar á fátækt og aðstæðum láglaunafólks á Íslandi. Á fundinum flutti Harpa erindi um óviðunandi kjör láglaunakvenna af íslenskum og erlendum uppruna. Kom Harpa þar inn á þá launastefnu sem rekin hefur verið hjá hinu opinbera, ríki og borg, sem valdið hefur eilífðarbaráttu, skorti og fátækt. Enn og aftur vakti fundurinn athygli fjölmiðla, sem gerðu málinu skil með viðtölum við Hörpu í tengslum við fundin. Kjarakönnun Eflingar – niðurstöður kynntar – 1. desember Niðurstöður árlegrar kjarakönnunar félagsins voru kynntar. Gallup vann könnunina líkt og undanfarin ár en hún er viðamikil og veitir dýrmætar upplýsingar um viðhorf og aðstæður félagsmanna í Eflingu. Tómas Bjarnason frá Gallup kynnti helstu niðurstöður. Að því búnu fjallaði Sara Öldudóttir sérfræðingur hjá Eflingu um tengslin milli könnunarinnar og kröfugerðarinnar sem Efling hefur lagt fram ásamt öðrum aðildarfélög- um Starfsgreinasambandsins. Fundir á pólsku og ensku gengu vel Tveir fundir fyrir pólskumælandi félagsmenn Eflingar voru haldnir í september og er óhætt að segja að félags- menn hafi tekið vel í þá. Góð mæting var á fundina og ljóst að mikilvægt er að halda fleiri slíka fundi þar sem félagsmönnum gefst kostur á að koma saman, fá svör við spurningum sínum og ræða málin á eigin tungumáli. Fyrri fundurinn var haldinn í Gerðubergi. Sá seinni var í húsakynnum Eflingar og fjallaði um réttindi og skyldur á vinnumarkaði þar sem sjónum var beint að kjarasamningnum og réttindi tengdum honum. Einnig var haldinn fundur á ensku þar sem fjallað var um réttindi og skyldur á vinnumarkaði og var fjöl- mennt á honum. STÓRA MYNDIN: FUNDARÖÐ EFLINGAR Efling-stéttarfélag efndi til þriggja opinna funda síð- astliðið sumar. Fundirnir voru hluti af fundaröðinni Stóra myndin þar sem Efling bauð til umræðna um vinnumarkaðstengd málefni ekki síst með hliðsjón af komandi kjarasamningavetri. Á fundunum var boðið upp á textatúlkun á ensku og íslensku eftir atvikum og var þeim streymt í gegnum Facebook síðu Eflingar. Mikið var lagt upp úr því að fólk hefði tækifæri til skoð- anaskipta og voru pallborð eftir hverja framsögu ásamt því sem tekið var við spurningum úr sal. Allir fundirnir vöktu athygli fjölmiðla og stuðluðu að málefnalegri umræðu um vinnumarkaðstengd mál. Þjóðarsáttin og þróun ójöfnuðar á Íslandi – 4. júní Á fyrsta fundinum flutti Stefán Ólafsson prófessor í félagsfræði erindi um rannsóknir sínar og Arnaldar Sölva Kristjánssonar á ójöfnuði sem birtust í bókin- inni Ójöfnuður á Íslandi: Skipting tekna og eigna í fjölþjóðlegu samhengi . Stefán gerði grein fyrir þróun ójöfnuðar á Íslandi á liðnum áratugum og kom m.a. inn á hvernig hann hefur aukist í kjölfar Þjóðarsáttarsamninganna. Í pallborði voru Guðmundur Jónsson, prófessor í sagn- fræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur í hagsögu, Margrét Valdimarsdóttir, félags- og afbrotafræðingur sem m.a. hefur fjallað um áhrif ójöfnuðar á samfélög í rannsóknum sínum og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans og höfundur fjölda ítarlegra úttekta um inn- lend og erlend efnahagsmál.Fundarstjóri var Þórhildur Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9 Indriði H. Þorláksson og Stefán Ólafsson, á fundi í febrúar þegar skýrsla þeirra í skattmálum var kynnt
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==