Efling Ársskýrsla 2019
52 Ólafsdóttir, dagskrárgerðarkona á Rás 1 og umsjónar- maður Samfélagsins. Hagþróun á forsendum jöfnuðar og hlutverk verka- lýðsfélaga 11. júní Á öðrum fundi Eflingar flutti breski hagfræðingur- inn Özlem Onaran erindi. Onaran er prófessor við Greenwich-háskóla í London og hefur gefið út mikið magn rannsókna um vinnumarkaðsmál og tengd efni. Hún hefur auk þess unnið skýrslur og álitsgerðir fyrir Alþjóða vinnumálastofnunina (ILO). Í erindi sínu fór Onaran á gagnrýnin hátt yfir það viðhorf, sem verið hefur útbreitt innan hagfræðinnar m.a. vegna áhrifa nýfrjálshyggju, að launakostnað- ur sé dragbítur á hagvöxt og að frelsi atvinnurek- enda til að greiða sem lægst laun séu samfélaginu til hagsbóta. Í pallborði sátu Drífa Snædal, þáverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins og Róbert Farestveit, hagfræðingur hjá hagdeildAlþýðusambands Íslands. Fundarstjóri var Þórhildur Ólafsdóttir. Nýir möguleikar í aðkomu lífeyrissjóða að leigumarkaði 18. júní Á þriðja og síðasta fundinum ræddi Ólafur Margeirsson hagfræðingur um mögulegar útfærslur þess að lífeyris- sjóðirnir komi að leigumarkaði, þau fjárhagslegu tæki- færi sem í því gætu falist fyrir sjóðfélaga og þjóðhagsleg áhrif slíkrar framkvæmdar. Þá rýndi hann einnig í röksemdir sem áður hafa verið settar fram ummálið af hálfu Landssamtaka lífeyrissjóða.Þau sem sátu í pall- borði voru Una Jónsdóttir, hagfræðingur og deildar- stjóri leigumarkaðsmála hjá Íbúðalánasjóði, Þórey S. Þórðardóttir, lögfræðingur og framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða og Gylfi Dalmann Aðal steinsson, dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fyrrverandi stjórnarformaður Búseta Fundarstjóri var Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR. MIKIÐ ÚTGÁFUSTARF Á HVERJU ÁRI Að jafnaði er mikið útgáfustarf unnið á vegum Eflingar. Kynningarefni er sent út með öllum stærri kjara- samningum um leið og þeir fara í atkvæðagreiðslu og er jafnframt til afhendingar á skrifstofum félagsins ásamt ýmsum sérsamningum. Eins var mikil útgáfa í tengslum við kjaraviðræðurnar, upplýsingabæklingar um kröfur Eflingar í kjaraviðræðunum, upplýsinga- bæklingar um verkföllin auk kynningarrits um nýjan kjarasamning. Jafnframt hefur verið búið til efni fyrir hina ýmsu fundi og uppákomur. Það má því segja að Efling hafi verið mun sýnilegri nú en áður og reynt að koma upplýsingum til sinna félagsmanna, á heimasíðu félagsins eins og alltaf, en eins í gegnum Facebook og prentað efni. UMBÓTAÁÆTLUN Í SKATTAMÁLUM Að beiðni Eflingar skrifuðu Stefán Ólafsson, sérfræðing- ur hjá Eflingu og Indriði H. Þorláksson, fyrrum ríkis- skattstjóri skýrsluna Sanngjörn dreifing skattbyrðar . Hún kom út í febrúar 2019 og var kynnt á opnum fundi þann 7. þess mánaðar. Í skýrslunni eru tillögur að því hvernig láglaunafólk og lífeyrisþegar geta fengið lækkun á staðgreiðslu og útfær- slur kynntar semmyndu að auki jafna ráðstöfunartekjur milli kynjanna, bæta hag ellilífeyrisþega, öryrkja og ungs fólks á vinnumarkaði. Samkvæmt tillögunum fengju um 90% framteljenda skattalækkun, lítil breyting yrði á skattbyrði næstu 5 prósentanna, en tekjuhæstu 5 prósentin fengju hækk- aða skattbyrði. Sýndar eru margar leiðir til að fjármagna slíkar breytingar, bæði með því að nýta núverandi svigrúm í ríkisfjármálunum og með brýnum umbótum á skattheimtu og efldu eftirliti með skattaundanskotum og skattvikum. Skýrslan var mikilvægur liður í baráttu Eflingar til að fá stjórnvöld til að ræða skattkerfisbreytingar sem kæmu láglaunafólki til góða. FRÉTTABLAÐ EFLINGAR Fréttablað Eflingar kemur út í sex tölublöðum árlega auk veglegs orlofsblaðs. Undanfarin ár hefur einnig sérstakt fræðslublað fylgt Fréttablaðinu í september og janúar en í janúar á þessu ári var horfið frá því. Eftir sem áður var viðamikill hluti blaðsins helgaður fræðslumálum en í stað sérstaks blaðs var meiri áhersla lögð á netmiðla Eflingar, á heimasíðu og Facebook síðu félagsins til að auglýsa námskeið. Það hefur verið sam- eiginlegt verkefni starfsmanna að leggja efni til blaðsins eins og sjá má í hverju tölublaði. Sviðsstjórar sjá um að stýra að mestu því efni sem kemur af sviðum en einnig eru starfsmenn almennt vel vakandi yfir nýju og góðu efni frá félagsmönnum. EFLING Á FACEBOOK Ein stærsta breytingin í útgáfumálum Eflingar var stofnun Facebook-síðu félagsins um mitt ár 2018. Þar er ýmislegt efni sett inn til upplýsinga og athygli vakin á málefnum og viðburðum sem félagið stendur að eða félagsmenn geta haft gagn af. Fylgjendum síðunnar hefur fjölgað ört og skapast hefur líflegt samfélag þar sem fólk tekur þátt í samræðum og gefur álit sitt á málum sem það varðar. Þá er boðið upp á samskipti í gegnum Facebook messenger. Þar geta félagsmenn sent Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==