Efling Ársskýrsla 2019

53 inn fyrirspurnir í stað þess að hringja eða senda tölvu- póst. Hefur þetta mælst vel fyrir hjá félagsmönnum. Markmiðið með Facebook síðu Eflingar er að auka við þjónustu við félagsmenn og vera sýnilegri í opinberri umræðu auk þess að skapa samræðugrundvöll fyrir félagsmenn. HEIMASÍÐA EFLINGAR Aukin áhersla hefur verið lögð á að birta fréttir og hvers kyns upplýsingar á öllum þremur tungumálum síðunn- ar, íslensku, ensku og pólsku. Sem dæmi má nefna að nú er allt efni sjúkrasjóðs komið á ensku á síðuna og unnið er að pólskri þýðingu. Stefnan er eins að hafa allt efni síðunnar aðgengilegt á þessum þremur tungu- málum enda er um helmingur félagsmanna Eflingar af erlendu bergi brotinn og mikilvægt allir geti geti kynnt sér réttindi sín á íslenskum vinnumarkaði auk þess að fá upplýsingar um þá styrki, nám og annað sem þau geta sótt í félagið. Í kjaraviðræðunum var opnaður sérstakur samninga- vefur Eflingar (samningar2019.is ) en markmið hans var að hafa á einum stað allt sem viðkom kjaravið- ræðunum. Gangur viðræðna, greiningar á þeim og tilkynningar voru birtar á íslensku, pólsku, ensku, spænsku og frönsku. Nokkrar færslur voru jafnvel þýddar á litháísku, rúmensku og tælensku. Vefsíðan var unnin í nánu samstarfi við vettvangsfulltrúa sem tóku kynningarefni á vinnustaði og til félagsmanna. Eftir að síðan var sett upp kom í ljós að mikil vöntun er á birtingu kynningarefnis á öðrum tungumálum en íslensku, sérstaklega meðal Pólverja en pólska útgáfa síðunnar var gríðarlega fjölsótt. JÓLABALL EFLINGAR Söngur, gleði og dans einkenndu jólaball Eflingar sem var haldið þann 15. desember. Fyrirkomulag varðandi skráningu á ballið var með sama hætti og árið áður, rafræn og aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn Eflingar. Því miður var nokkuð um að þeir sem áttu bókaðan miða mættu ekki og því komust færri að en vildu og pláss leyfði. Þrátt fyrir það var góð stemning í salnum en ballið var haldið í Gullhömrum að venju. DAGBÓK EFLINGAR Félagsmenn gátu nálgast eintak af dagbók Eflingar fyrir árið 2019 á skrifstofu félagsins eða fengið hana senda til sín. Hún var ekki send til félagsmanna eins og vaninn hefur verið. Í dagbókinni er fjallað um öll helstu mál sem snerta félagsmenn, réttindi og skyldur launafólks þannig að reynt er að miða við að bókin geti nýst launafólki á vinnustöðum til að gefa fyrstu upplýsingar. Í henni er að finna helstu upplýsingar um Eflingu, sjóði félagsins og annað gagnlegt. Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9 Lítil stúlka himinlifandi með nammipokann sinn á jólaballi Eflingar 2018

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==