Efling Ársskýrsla 2019
54 KAFFIBOÐ ELDRI FÉLAGSMANNA Það var glatt á hjalla þegar eldri félagsmenn Eflingar hittust í hinu árlega kaffiboði félagsins þann 6. maí í Gullhömrum í Grafarholti. Fólk spjallaði saman, hitti fyrir gamla kunningja og naut félagsskaparins. Hljómfagrir tónar mættu félagsmönnum og gestum þeirra þegar þeir mættu í hús því eins og fyrri ár spilaði Kristján Guðmundsson á flygilinn. Sólveig Anna Jónsdóttir, þá nýkjörinn formaður Eflingar, ávarpaði gesti og síðan tóku við glæsileg skemmtiat- riði. Egill Ólafsson söng falleg lög við undirspil Björns Thoroddsen. Fólkið streymdi svo út á dansgólfið þegar Ingólfur Þórarinsson eða Ingó Veðurguð byrjaði að syngja og spila ásamt Kristjáni Guðmundssyni. Veitingar hússins voru veglegar að vanda sem og þjónusta og var ekki annað að sjá en að félagsmenn skemmtu sér vel. Það nýmæli var í fyrra að í stað þess að afhenda miða fyrir kaffiboðið til að framvísa við innganginn var boðið upp á að félagsmenn skráðu sig á ballið rafrænt eða símleiðis hjá skrifstofu Eflingar. Var því nóg að gefa upp nafn þegar mætt var á vorfagnaðinn. Var þetta gert til að auðvelda félagsmönnum að skrá sig á vorfagnað þar sem fólk á misgott með að koma á skrifstofu Eflingar til að fá afhenta miða. BÓKASAFN DAGSBRÚNAR Bókasafn Dagsbrúnar er sérfræðisafn á sviði atvinnu- lífsrannsókna, verkalýðsmála og handbókasafn fyrir ReykjavíkurAkademíuna. Það hefur verið í umsjón ReykjavíkurAkademíunnar um fjórtán ára skeið eða allt frá árinu 2003. Á safninu er vinnuaðstaða fyrir þá sem rannsaka þróun verkalýðshreyfingar, velferðar- kerfis og íslensks atvinnulífs. Bókasafn Dagsbrúnar er í eigu Eflingar- stéttarfé- lags, en hefur starfað í húsakynnum Reykjavíkur Akademíunnar, nú síðustu árin í Þórunnartúni 2. Safnið er í umsjá Ingibjargar Hjartardóttur bóka safnsfræðings og er opið samkvæmt samkomulagi. Framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar er Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir. DAGSBRÚNARFYRIRLESTUR Efling hefur á hverju ári minnst afmælis elsta félagsins semsameinuðust í Eflingumeðþví að efna til fyrirlestra í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna. Hinn árlega Dagsbrúnarfyrirlestur ReykjavíkurAkademíunnar, Bókasafns Dagsbrúnar og Eflingar-stéttarfélags að þessu sinni flutti Svanur Kristjánsson, stjórnmála- fræðingur og prófessor emeritus undir yfirskriftinni Róttæk og öflug verkalýðshreyfing eða gönuhlaup nýrrar forystu? Fundurinn fór fram 7. mars 2019 í salarkynnum Eflingar og var einkar vel sóttur. Umræður voru með líflegasta móti. Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9 Svanur Kristjánsson flytyr erindi sitt á Dagsbrúnarfyrirlestrinum
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==