Efling Ársskýrsla 2019
8 GALLUP KÖNNUN Gallup framkvæmir launakönnun fyrir Eflingu stéttar- félag á ári hverju og veitir mikilvægar upplýsingar um kjör félaga. Könnunin er framkvæmd í september þar sem spurt er út í laun svarenda fyrir ágústmánuð. Hafa niðurstöðurnar að geyma mikilvægar upplýsingar sem snúa að viðhorfum félagsmanna til kjaramála auk annarra mikilvægra mála. Í könnuninni kom fram að verulega dregur úr hækkun heildarlauna en hún er 2% á milli ára að meðaltali, miðað við 10% árið áður. Á sama tíma lengist vinnu- tíminn um tæplega eina klukkustund á viku og vinnur félagsfólk nú að meðaltali 46,8 klukkustundir á viku miðað við fullt starf. Fjárhagsáhyggjur aukast og hefur tæpur helmingur félaga miklar áhyggjur af eigin fjár- hagsstöðu. Meðalheildarlaun karla eru um 523 þúsund krónur fyrir ágúst á þessu ári en talsvert lægri hjá konum, eða um 412 þúsund krónur á mánuði fyrir fullt starf. Leiðbeinendur á leikskólum og frístundaheimilum eru, líkt og í fyrra, með lægstu heildarlaunin eða 358 þúsund krónur á mánuði að meðaltali en sá hópur upplifir jafnframt mest álag í starfi. Skrifstofufólk, stjórnendur og sérfræðingar auk bílstjóra eru með hæst launin meðal Eflingarfólks eða um 573 þúsund krónur að meðaltali. Húsnæðismál eru stór þáttur kjaraviðræðna einkum gagnvart Ríki. Slæmt ástand í húsnæðismálum kemur ekki síst illa við félaga Eflingar. Hlutfall félagsfólks sem að býr í eigin húsnæði minnkar frá því í fyrra úr 44% í rétt rúm 40%. Að sama skapi hækkar hlutfall leigjenda, úr 33% á síðasta ári í 40% 2018. Í árlegri Gallup viðhorfskönnun má finna margar athyglisverðar niðurstöður. Á síðasta starfsári var horfið frá samstarfi við Hlíf í Hafnarfirði, VSFK í Keflavík og Stéttarfélag Vesturlands sem áður mynduðu Flóabandalagið. Öll áhersla er nú á að kanna kjör félagsfólks Eflingar. Niðurstöðurnar hafa mikla þýðingu fyrir stefnumótun félagsins þar sem að þær endurspegla kjör félagmanna og viðhorf til mikilvægra mála sem snerta starf þess. Þessar upplýsingar eru sérlega mikilvægar í aðdraganda kjarasamninga. HÆKKUN HEILDARLAUNA EFLINGARFÓLKS HELDUR EKKI Í VIÐ VERÐBÓLGU Þegar horft er til heildarlauna er hækkun frá ári til árs lítil eða 2% að meðaltali á meðan að almenn hækkun heildarlauna á samsvarandi tíma var 5% skv. tölum Hagstofu Íslands. Þannig fór meðaltal heildarlauna úr 470 þúsund kr. á mánuði í 479 þúsund. Þessi takmark- aða hækkun heldur vart í við verðbólgu á tímanum sem var 2,2%. Þegar er horft til dagvinnulauna þá er hækkunin meiri eða 5,2% og fer úr 375 þúsund kr. á mánuði í 394 þúsund í meðaltekjur og þar vegur 3% kjarasamningsbundin hækkun frá 1. maí 2018 þungt. Af þessu tölum er ljóst að félagar í Eflingu hafa dregist aftur úr öðrum hópum hvað varðar launahækkanir. Óánægja með laun er talsverð og hefur farið vaxandi frá árinu 2016 en tæpur helmingur svarenda er óánægður með laun sín og einungis 22% eru sáttir við launin. Ekki kemur á óvart að óánægjan helst í hendur við launastigann en 70% þeirra sem að hafa mánaðarlaun undir 350 þúsund krónur eru ósáttir við launin. Að meðaltali telja félagar að hækka þurfi heildarlaun um 80 þúsund krónur á mánuði. KONUR ERU MEÐ 79% AF LAUNUM KARLA Í HEILDARLAUN Á MÁNUÐI AÐ MEÐALTALI Heildarlaun karla eru að meðaltali 111 þúsund krón- um hærri en heildarlaun kvenna fyrir fullt starf. Heildarlaun karla í fullu starfi eru að meðaltali 523.000 kr. á mánuði og 412.000 kr. hjá konum. Hins vegar er meðaltal heildarmánaðarlauna allra félagsmanna 473.000 kr. á mánuði og miðgildi heildarmánaðar- launa 450.000 kr. Há laun fárra einstaklinga hafa KJARAMÁL Ragnar Ólason, sviðsstjóri kjaramála Á R S S K Ý R S L A E F L I N G A R 2 0 1 8 – 2 0 1 9
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==