Page 31 - Fréttablað Eflingar - sept 2012

Basic HTML Version

Viðtalið
31
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Holdsveikraspítalinn
hér á landi. Önnur telpan var komin með
hryggskekkju og mátti því ekki vera á sínu
hjóli og naut ég góðs af því, ég mátti hafa það.
Ég fór alltaf síðla dags heim aftur til ömmu,
þá fór ég niður á Lækjargötu og upp Banka-
stræti. Dag einn þegar ég fór heim tók ég eftir
að fólk fór niður tröppur ofan í götuna og upp
líka. Ég sá fyrir mér að þarna væri eitthvað
spennandi eins og búðir. Ég druslaðist með
hlaupahjólið niður tröppurnar. Niðri voru
tvær dyr, ég opnaði aðra sem var geymsla og
tróð ég hjólinu þangað inn og opnaði svo hina
þar blasti við hvítur gangur með mörgum
hurðum og kona sem spurði hvort ég þyrfti á
klósettið. Ég fór inn á eitt og stóð um á stund
og fór því fram aftur, þá rukkaði hún mig um
tíu aura. Ég átti auðvitað enga aura og hreytti
hún einhverju í mig og ég fór heim.
Ég fór mjög oft í sund í gömlu laugunum,
það kostaði tíu aura með strætó sem amma
lét mig fá, þarna sá ég möguleika á því að
geta borgað skuld mína og eitt skiptið gekk
ég heim til að spara. Ég kom auðvitað allt of
seint heim, amma hrædd og reið og skamm-
aði mig.
Næst þegar ég fór til frænku minnar kom ég
við á klósettinu og borgaði tíu aurana. Konan
sem tók við honum var mjög ánægð og þakk-
að mér og sagði að ég mætti koma hvenær
sem ég vildi, ég fór aldrei aftur.
Sólbað innan um kransa
Eitt sinn um sumarið fórum við amma, dóttir
hennar og telpurnar hennar niður í fjöru. Þær
sátu og sóluðu sig á meðan við busluðum í
sjónum. Þessi staður hefur verið nálægt Foss-
vogskirkjugarðinum því þar sem við vorum
voru margir kransar og blómvendir sem hafa
annað hvort fokið úr garðinum eða verið hent.
Vinnan og sumarið síðast liðið
Hólmfríður býr núna í Reykjavík og líkar vel.
Ég giftist til Ólafsfjarðar, Þorsteini Jónssyni
vélsmið, sem nú er látinn, bjó þar í tuttugu
og þrjú ár og eignaðist sjö börn. Hún flutti til
borgarinnar 1971.
Fyrsta starfið hennar var þegar hún var 15-16
ára í síld eitt sumar á Siglufirði og síðan vann
hún á símstöðinni þar í nokkur ár. Mestan
hluta starfsævi sinnar eyddi hún á heim-
ilum fólks og gætti barna þeirra, var einnig
hjá Félagsmálastofnun og aðstoðaði þar sem
þurfti stuðning.
Þegar maður er búinn að koma sjö börnum í
höfn er aldurinn orðinn það hár að ekki er um
margt að velja í vinnu.
Hólmfríður segist hafa nýtt sumarið vel eftir
því hvað hægt er að gera af konu komna á
níræðisaldur. Ég fór í meiriháttar ferð sem
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar efndi
til, eins og alltaf er ein ferð á sumri fyrir eldri
félagsmenn. Núna var farið til Vestmannaeyja
í besta veðri sem hægt er að fá, ég lifi á henni,
ég hafði aldrei komið til Eyja fyrr, segir hún
að lokum.
Þau leiðu mistök urðu við frásögn af
útskrift af fagnámskeiði II í síðasta
blaði Eflingarblaðsins að föðurnafn
Ingigerðar Friðgeirsdóttur misritaðist
í fréttinni og er það leiðrétt hér með.
Er Ingigerður beðin afsökunar á
þessum mistökum blaðsins.
Ritstj.
Félagsmönnum Eflingar býðst nú að ræða
við ráðgjafa hjá félaginu um starfsendurhæf-
ingu sér að kostnaðarlausu. Endurhæfingar-
ráðgjöf er ekki einungis fyrir þá sem glímt
hafa við langvarandi veikindi. Samtal við
ráðgjafa jafnvel við upphaf veikinda getur
verið mjög gagnlegt til þess að fá ráðgjöf,
Það kostar ekkert
að ræða við ráðgjafann
Ingigerður Friðgeirsdóttir
stuðning eða hvatningu og sjá fyrir sér þau
úrræði sem bjóðast sem fyrst. Úrræðin geta
orðið mikil stoð þeirra sem síðar lenda í
skertri vinnugetu til þess að geta starfað
áfram á vinnumarkaði. Netfang ráðgjafanna
er
radgjafi@efling.is
Hólmfríður til vinstri ásamt frænkum sínum og syni franska sendiherrans