Page 32 - Fréttablað Eflingar - sept 2012

Basic HTML Version

32
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Skattaeftirlit
www.efling.is
Skattaeftirlit heldur áfram
ASÍ SA og RSK
ASÍ, SA og embætti ríkisskattstjóra
hafa tekið ákvörðun um að halda áfram
með verkefni sem hófst á síðasta ári og
miðar að eflingu góðra atvinnuhátta.
Verkefnið verður áfram undir sama
slagorði þ.e. leggðu þitt af mörkum.
Jafnframt hafa þessir sömu aðilar nú
ákveðið að skoða tvö svið sérstaklega
í sumar og haust þ.e. ferðaþjónustu­
fyrirtæki og fyrirtæki í byggingariðn­
aði. Efling-stéttarfélag hefur komið
að þessu verkefni með starfsmönnum
sínum á sviðum sem hafa verið til
skoðunar á síðasta ári en áherslan í
sumar hefur verið á fyrirtæki í gisti-
og ferðaþjónustu en fyrirhugað er að
sinna einnig fyrirtækjumí byggingar­
iðnaði og mannvirkjagerð. Þá hafa
aðilar verkefnisins lagt áherslu á það í
samtölum sin á milli að unnið verði að
lagabreytingumtil að styrkja eftirlits­
þátt samstarfsins og gera virk úrræði til
að geta tekið ákveðnar og markvissar
á skattalagabrotum. Þá hafa þessir
sömu aðilar rætt um að gera með sér
langtíma samkomulag með þeim mark­
miðum að vinnaað bættu skattskilum
og gegn svartri atvinnustarfsemi.
Skattaeftirlit ríkisskattstjóra stendur oft
frammi fyrir því að sannanir liggja fyrir um
fullframin brot á skattalögum og -reglum, en
virkari úrræði skortir til að stöðva eða taka
á slíkum brotum. Þetta eru brot sem kosta
þjóðfélagið tugi milljarða króna á hverju ári.
Átaksverkefni RSK, ASÍ og SA á síðasta ári
leiddi í ljós að tap sem afleiðing af svartri
vinnu kostar þjóðfélagið tæpa 14 milljarðar
króna á ári. Helminginn af þeirri upphæð
mætti nota til að borga upp niðurskurð
Landspítalans síðustu tveggja ára. Á mánuði
samsvarar það um 1,1 milljarði króna eða
allt að 50 milljónum króna á dag. Þetta
viðgengst á meðan tækifæri og ávinningur
eru til staðar til að stunda þessi brot. Lausn
þessa máls felst einmitt í því að koma í veg
fyrir að það sé ávinningur af því að brjóta lög
og er unnið að því.
Skilvirkasta og raunhæfasta leiðin sem virk-
ar til að stöðva þau skattalagabrot sem hér
er lýst, er að beita áminningum, sektum ef
áminningum er ekki sinnt og jafnvel rekstr-
arstöðvun ef ekki er látið af alvarlegri brota-
hegðun. Með tiltölulega einfaldri lagabreyt-
ingu er hægt að virkja þessi úrræði, sem yrði
sennilega arðsamasta lagsetning sem sögur
færu af í langan tíma. Það kann einhverjum
að finnast þetta harkalegt.
Er það samt ekki
enn harkalegra að láta það viðgangast
að samfélagið tapi tugum milljarða á ári
vegna þess að ekki er farið að lögum? Á
meðan svo er velta þeir sem brotin fremja
sínum samfélagskostnaði yfir á skilvísa
skattgreiðendur, en þeir vilja samt njóta
sömu samfélagsþjónustu og aðrir. Er það
ekki miklu harkalegra ástand? Það getur
varla talist harkalegt að ætlast til þess að
lögboðin gjöld skili sér?
Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson