Page 33 - Fréttablað Eflingar - sept 2012

Basic HTML Version

33
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Viðtalið
Veikindi
Þegar einstaklingar verða veikir er
mjög mikilvægt að bregðast fljótt
við. Hér erum við ekki að ræða um
skammtímaveikindi svo sem kvef
eða flensu, heldur veikindi sem
hafa áhrif á líðan okkar heima og í
vinnunni og skerða starfsgetu okk-
ar. Þá er tímabært að staldra við og
skoða sinn hug. Þegar við stöndum
frammi fyrir þeim vanda að við
getum ekki sinnt fullu starfi vegna
heilsubrests er ekki skynsamlegt að
bíða með málið og sjá hvað verður.
Mikilvægt að leita sér
aðstoðar sem fyrst
Við þessar aðstæður sem lýst er hér að
ofan, langvarandi vanlíðan eða veikindi,
afleiðingar slysa sem há okkur í athöfnum
daglegs lífs eða hamla okkur í starfi, þá
hvetjum við fólk til þess að leita sér að­
stoðar sem allra fyrst hjá starfsendurhæf­
ingarráðgjöfum stéttarfélaganna. Ráð­
gjafar sem staðsettir eru í stéttarfélögum
eins og Eflingu gegna því hlutverki að
koma inn í mál við þessar aðstæður.
Ráðgjafar skoða mál hvers og eins og
meta hvort unnt er að koma viðkomandi
til aðstoðar.
Þeir sem sækja um sjúkradagpeninga
geta fengið upplýsingar um þjónustuna
hjá fulltrúa sjúkrasjóðs en geta einnig
haft samband við ráðgjafa VIRK hjá
Eflingu og fengið upplýsingar.
Því lengur sem við erum frá vinnu
aukast líkurnar á því að við getum ekki
snúið aftur til vinnu. Hver mánuður
skiptir máli. Sá sem leitar þjónustu eftir
að hafa verið frá vinnu í eitt ár vegna
veikinda á mun lengri og erfiðari þrek­
göngu framundan en sá sem leitar sér
hjálpar strax.
Markmiðið er að grípa inn í eins fljótt
og hægt er til að koma í veg fyrir afleið­
ingar langvinnra veikinda s.s. depurð og
kvíða. Þannig er hægt að mynda góðan
grunn til að vinna með fólki að endur­
komu til vinnu.
Hvíldin getur vissulega verið góð, en
aðgerðarleysi í lengri tíma er ekki gott.
Samband við vinnufélaga minnkar, fólk
á til að einangra sig og upplifir stundum
skömm eða samviskubit yfir því að geta
ekki gert eins mikið og aðrir svo eitthvað
sé nefnt.
Þjónustan er ókeypis og er opin þeim
sem eru með skerta starfsgetu vegna
heilsubrests en stefna ótrauðir á vinnu­
markað.
Því lengur sem við erum frá
vinnu vegna veikinda því minni
líkur eru á því að komast aftur
til starfa.
Nokkur heilræði í veikindum