Orlofsblað Eflingar 2020

30 ORLOFSBLAÐ EFLINGAR-STÉTTARFÉLAGS Skemmtilegir leikir í fríinu Það er gaman að leika saman. Til eru margir skemmtilegir leikir, hvort sem er í bílferðinni á leiðinni í frí, inni í bústað eða úti í góða veðrinu. Á leiðinni: Einn einfaldur: Gulur bíll: Einstaklega skemmtilegur leikur sem allir geta tekið þátt í. Hann virkar einfaldlega þannig að fólk á að reyna að finna gulan bíl, sá eða sú sem finnur flesta vinnur. Það má svo alltaf uppfæra leikinn og gera hann meira spennandi með því að gefa ákveðnum lit eða bílategundum stig og telja saman stigin uns einhver nær yfir 20 stigum. Einn fjörugur: Hver er persónan? Þú getur verið hvaða persóna sem er í heiminum, veldu bara eina og hinir eiga að reyna að giska á hver þú ert. Það má bara spyrja já og nei spurninga. Góðar upphafsspurningar: Alvöru manneskja? Kvenkyns? Gamall? Einn skondinn: Nærbuxurnar hans afa! Allt í lagi, hljómar hálf skringilega en er alveg sprenghlægilegur og mjög einfaldur. Einn á að gera og hinir að spyrja einhverja spurninga, öll svör enda á Nærbuxurnar hans afa! Sá sem á leik má hvorki brosa né hlægja. Dæmi: Hvað finnst þér best að nota sem húfu? Nærbuxurnar hans afa. Ha, í alvöru! Prófið að svara svona án þess að hlægja eða brosa. Nokkrir góðir í bústaðnum: Er leiðinlegt veður og þú vilt bara vera inni í huggulegheit- um, ekki málið, taktu í spil og njóttu: Svarti Pétur. Það vill enginn vera svarti Pétur. Annað hvort er jókerinn notaður sem svarti Pétur eða laufagosinn tekinn burt og þá er spaðagosinn svarti Pétur. Spilum er útbýtt þannig að stokkurinn klárast. Allir eiga að safna tveimur samstæðum spilum en spilari á vinstri hönd við þann sem gaf dregur spil Fun games to play on the vacation Playing games together is fun. There are fun games, whether on the car-ride on the way, inside the vacation house or outside in the good weather. On the way: A simple one: Yellow car: A singularly entertaining game which all can play. It goes simply: try to find a yellow car, and the one who finds the greatest number of them wins. The game can always be updated and made more exciting by assigning points to certain colors or types of car and adding them up until someone exceeds 20 points. A lively one: Who is the person in question? You can be any person in the world, simply select one and the others are to try to guess your identity. The only questions allowed are yes/no questions. Good initial questions: A real person? Female? Old? A quirky one: Grampa’s underpants! It sounds a bit odd but it’s quite funny and quite simple. One of you plays and the others ask questions, all answers end in the words: Grampa’s underpants! The twist is that the person whose turn it is can neither smile nor laugh. Example: What do you prefer to use as a hat? Grampa’s underpants. What? Seriously! Try answering like that without laughing or smiling. A few good ones for the vacation house: Is the weather ghastly and you feel like just hanging out indoors? That’s alright, just play some games and enjoy yourself: Black Pete. No one wants to be black Pete. The joker may be used to represent black Pete or the jack of clubs taken away, in which case the jack of spade is used as black Pete. Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==