VR Blaðið I 01 2020

VR BLAÐIÐ 01 2020 17 EKKI GLEYMA ÞÉR! Ertu að sækja um starf? Veistu hvernig fyrirtækið kemur út í könnun VR á Fyrirtæki ársins? Könnunin 2020 er hafin og stendur fram í miðjan mars. Þú getur svarað könnuninni á Mínum síðum á vef VR. HVERNIG ER FYRIRTÆKI ÁRSINS VALIÐ? VR hefur kannað aðbúnað félagsmanna sinna og viðhorf þeirra árlega í meira en tvo áratugi. Allir félagsmenn VR fá senda könnun um fyrir- tæki ársins en fjöldi fyrirtækja tryggir að auki öðrum starfsmönnum sínum þátttökurétt í könnuninni, óháð því í hvaða stéttarfélagi þeir eru. Í ár fá allir starfsmenn 130 fyrirtækja tækifæri til að taka þátt og er könnunin því send til um 40 þúsund starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Könnun VR á Fyrirtæki ársins er þannig ein viðamesta vinnumarkaðskönnun sem gerð er á Íslandi. Í könnuninni er spurt um viðhorf til níu lykilþátta í starfsumhverfi svar- enda. Þættirnir eru stjórnun fyrirtækisins, starfsandi á vinnustaðnum, launakjör, vinnuaðstaða, sveigjanleiki í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd fyrirtækisins, jafnrétti og að síðustu ánægja og stolt af vinnustaðnum. Gefin er einkunn fyrir hvern lykilþátt og saman mynda þær heildar- einkunn fyrirtækis. Vægi þáttanna í heildareinkunninni er misjafnt, viðhorf til stjórnenda fyrirtækisins vegur þar þyngst. Ítarleg umfjöllun um þættina og þróun þeirra er á vefsíðu VR, www.vr.is. FIMMTÁN FYRIRTÆKI FÁ TITILINN FYRIRTÆKI ÁRSINS Fyrirtækjum er skipt í þrjá flokka eftir stærð, stærstu fyrirtækin eru þau sem eru með 70 starfsmenn eða fleiri, hjá næststærstu fyrirtækjunum eru starfsmenn frá 30 til 69 talsins og hjá þeimminnstu eru starfsmenn færri en 30. Fimm efstu fyrirtækin í hverjum stærðarflokki fá titilinn Fyrirtæki ársins, alls fimmtán fyrirtæki. Fyrirtækin í fimmtán efstu sæt- unum fá viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki. Eingöngu fyrirtæki sem tryggja öllum starfsmönnum sínum þátttökurétt koma til greina í vali á Fyrirtæki ársins. EKKI BARA VAL Á ÞEIM BESTU Könnunin veitir starfsmönnum vettvang til að tala við stjórnendur sinna vinnustaða, hrósa því sem vel er gert en benda jafnframt á það sem þarf að laga. Niðurstöðurnar eru þannig mælikvarði á frammistöðu stjórnenda fyrirtækja og nýttar til að veita þeim fyrirtækjum sem standa sig vel í mannauðsmálum viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Könnunin sýnir hver staða fyrirtækisins er í augum starfsmanna og í samanburði við önnur fyrirtæki á vinnumarkaði. En niðurstöður í könnun VR á Fyrirtæki ársins eru meira en bara viðurkenning til fyrirtækja. Þær gefa félagsmönnum og starfsmönnum á almenna vinnumarkaðnum almennt upplýsingar um starfskjör í fyrir- tækjumog viðhorf starfsmanna þeirra semog þróun á vinnuaðstæðum. Þær gefa VR einnig dýrmætar upplýsingar um hvar hallar á félagsmenn og hvernig kjarabaráttan hefur skilað árangri. Niðurstöður könnunar- innar eru mikilvægt innlegg í kjaraviðræður og renna fleiri stoðum undir starfsemi og þjónustu félagsins. VILTU VINNA IPHONE 11? Taktu þátt í könnuninni um Fyrirtæki ársins 2020 og þú gætir unnið glæsilega vinninga! Þú færð að vita strax hvort þú hefur unnið en meðal vinninga eru rafmagnshlaupahjól, gjafabréf hjá Icelandair, gjafabréf hjá Nordica og hátíðarpassar á Þjóðhátíð. Rúsínan í pylsuendanum eru þrír Iphone 11 en þeir vinningar verða dregnir út í lok könnunarinnar. Það margborgar sig að taka þátt í Fyrirtæki ársins 2020! Virðing Réttlæti

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==