VR Blaðið I 01 2020

VR BLAÐIÐ 01 2020 5 un til grasrótarinnar og skila henni ómengaðri í kröfugerðir félaganna. Og taka svo með sér inn á miðstjórnarborð Alþýðusambandsins, sem svaraði kallinu með því að endurnýja forsetateymi og miðstjórn ASÍ. Verkalýðshreyfingin fann svarið sem aðrar stofnanir samfélagsins hafa leitað að en ekki haft erindi sem erfiði. Svo brenglaðar og fjarstæðu- kenndar virðast hugmyndirnar til að endurvinna traust hafa verið að stofnaðar hafa verið sérstakar nefndir sem eiga að koma með tillögur eða jafnvel farið í sérstakar auglýsingaherferðir. Lausnin gæti hinsvegar ekki verið einfaldari. Að hlusta. Hlusta á fólkið. Að standa við það sem sagt er en gera ekki eitthvað allt annað. Að tala við fólkið en ekki til þess. Að ávinna sér traustið en ekki reyna að kaupa það með herferðum rétt fyrir kosningar. Gætu kjósendur gert það sama í næstu alþingiskosningum og félags- mönnum verkalýðshreyfingarinnar tókst að gera? Væri möguleiki að kjósa í burtu kjörna fulltrúa sem ítrekað hafa fengið tækifæri til að vinna fyrir fólkið en jafnharðan snúist gegn því þegar þröngir sérhags- munahópar banka upp á? Munum við sjá slíkan valkost verða að veruleika? Samkvæmt könnunum er gríðarleg eftirspurn eftir slíku afli. Væri það ekki tilbreyting að fá raunverulega skjaldborg um heil- brigðiskerfið í stað skjaldborgar um fiskveiðistjórnunarkerfið og dekrið í kringum milljarðamæringana sem kerfið hefur alið af sér á kostnað grunnþjónustunnar? Væri það ekki ljúf tilhugsun ef ríkisreknir eftirlitsaðilar eins og Fjármála- eftirlitið færu frekar í að rannsaka raunveruleg efnahagsbrot, skatta- undanskot, aflandsfélög auðmanna og peningaþvætti tengdum sjávar- útvegsfyrirtækjum og fjármálakerfinu í stað þess að ráðast á verkalýðs- félög sem hafa fengið upp í kok af spillingunni og meðvirkninni innan t.d. lífeyrissjóðakerfisins? Væri ekki nær að bæta starfsumhverfi og kjör þeirra verst settu í stað þess að byggja tugmilljarða glerhöll utan um Landsbankann, byggingu sem enginn vill eða bað um og byggja þess í stað íbúðarhúsnæði fyrir fjölskyldur um 800 til 1.000 barna sem búa við óviðunandi aðstæður í iðnaðarhúsnæðum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu? Væri ekki nær að byggja hagkvæmt íbúðarhúsnæði sem fólk hefur efni á að kaupa eða leigja í stað þúsunda lúxusíbúða og lúxushótelherbegja sem ekki virðist vera nokkur markaður fyrir? Erum við nokkuð gleymin á loforðin? Gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustan og skjaldborgin myndgerðust í að sjúklingar liggja á göngum eða inni á klósettum á meðan starfsfólk örmagnast undan álagi. Fólk hefur enn ekki efni á að veikjast á meðan haldnar eru rándýrar fullveldishátíðir og önnur boð sem enginn bað um eða skilur. Það átti að bæta hag öryrkja, afnema skerðingar og það átti að stöðva rányrkju almannatryggingakerfisins á uppsöfnuðum lífeyri eldri borgara. En hvað fengum við? Í staðinn fengum við sérstakar hækkanir Kjararáðs til hálaunafólks og hækkun framlaga til stjórn- málaflokka sem aftur öskra á torgum til þeirra sem höllustum fæti standa um að gæta hófs í nafni heilags stöðugleika. Það átti að styrkja innviði en í staðinn er talað um vegatolla og lækkun veiðigjalda. Við áttum að sjá hvítbók um fjármálakerfið en fengum hvítþvott. Við sjáum niðurskurð til meðferðarstofnana á meðan met er slegið í gagnslitlum skýrslukaupum. Framúrkeyrsla, spilling og brengluð forgangsröðun virðist oft vera aðalsmerki stjórnsýslunnar og er alltof langt mál að taka fleiri dæmi þar um. Einhverjir hljóta að bera ábyrgð. Og ábyrgðin er ekki síst okkar sjálfra. Við erum löngu búin að fyrirgera þeim rétti að hafa ekki vitað betur þegar við treystum rótgrónum stjórnmálaflokkum enn einu sinni og enn eina ferðina til að taka hagsmuni okkar fram yfir þrönga sérhagsmuni. Öllu fögru var lofað en allt annað var gert, eins og venju- lega. Hlustað rétt fyrir kosningar en ekkert þess á milli. Lífskjarasamningurinn var mjög afturhlaðinn samningur. Það þýðir að mestu kjarabæturnar hafa ekki enn komið fram en munu gera það á allra næstu mánuðum. Og ef stjórnmálin standa við sinn hluta er jafn- vel bjart framundan á húsnæðismarkaði. Mikil varnarbarátta mun því einkenna næstu misseri. Varnarbarátta lífskjara og lífsgæða og þeirra mála sem við sömdum um. Næstu Alþingiskosningar munu reynast stóra prófið fyrir okkur sem samfélag. Útkoman mun endurspegla styrkleika okkar og umburðarlyndi gagnvart stöðunni. Á þingi Alþýðusambandsins þann 24. október 2008 voru í framboði til forseta Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri ASÍ og Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, þáverandi varaforseti ASÍ og formaður Landssam- bands íslenzkra verzlunarmanna. Gylfi sigraði og var kjörinn forseti ASÍ. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir tók ósigrinum af stakri prúðmennsku en veitti nýkjörnum forseta heilræði sem við ættum öll að temja okkur í leik og starfi. Ingibjörg lést í október 2010 eftir 30 ára afar farsælt starf innan verka- lýðshreyfingarinnar. Ég þekkti Ingibjörgu ekki mikið en við spjölluð- um þó saman nokkrum sinnum. Heilræðið góða situr sem fastast en þó því hafi ekki verið beint til mín þá tek ég það til mín í öllu sem ég geri. „Þú verður að hlusta.“ Ragnar Þór Ingólfsson Formaður VR LEIÐARI Framúrkeyrsla, spilling og brengluð forgangs- röðun virðist oft vera aðalsmerki stjórnsýslunnar og er alltof langt mál að taka fleiri dæmi þar um. Einhverjir hljóta að bera ábyrgð. Og ábyrgðin er ekki síst okkar sjálfra. Virðing Réttlæti

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==