Fréttablað Eflingar 6. tbl. 2019

19 F R É T TA B L AÐ E F L I N G A R - S T É T TA R F É L AG S Ný í stjórn Eflingar Ólöf Helga er flugmaður að mennt en starfar sem hlaðmaður hjá Flugfélagi Íslands. Sem hlaðmaður tekur hún á móti töskum, setur þær um borð og tekur frá borði, auk þess að sjá um fraktina. Yfir vetrartímann er það á höndum hlaðmanna að afísa flugvélarnar og draga þær inn og út úr skýlunum. Þó að þessi vinna sé líkam­ lega erfið finnst Ólöfu hún mjög skemmti­ leg, bæði vegna þess að hún vinnur með skemmtilegu fólki en einnig vegna þess að það hentar henni mun betur að vinna útivinnu – enda mikilvægt að geta hoppað í pollum í vinnunni! Bein afskipti Ólafar Helgu af verkalýðsbar- áttunni byrjuðu fyrir um ári síðan þegar hún var kosin trúnaðarmaður hjá Flug­ félagi Íslands. Pabbi Ólafar var mjög virkur í trúnaðarstörfum þegar hún var að alast upp, svo málaflokkinn þekkti hún í gegnum hann. Eftir að hún var sjálf kosin trúnaðar- maður óx áhuginn á verkalýðsmálum jafnt og þétt. Hún fór á trúnaðarmannanám- skeiðin og lærði mikið á þeim og smám saman urðu verkalýðsmálin fyrirferðameiri í samræðum þeirra feðgina. Ólöfu var svo boðin seta í trúnaðarráði og fannst það mjög áhugaverð reynsla. Í kjölfarið sóttist hún eftir því að fara á lista í stjórn Eflingar og í dag er Ólöf ritari í stjórn. Ólöf segir stjórnarstarfið mjög áhugavert. „Ég er að læra. Það eru miklar breytingar í gangi núna. Nýja stjórnin er enn þá að breyta því sem er gamalt þannig að það er margt að gerast. Kannski ekki alveg týpísk stjórnarstörf í gangi núna. En þetta er mjög skemmtilegt og gaman að sjá að maður getur haft áhrif á ýmislegt“. Ólöf vill með setu sinni í stjórn auka vitund fólks um réttindi þeirra á vinnumarkaði og hlutverk stéttarfélaga. Henni er umhugað um að auka fræðslu fyrir ungt fólk sem er að taka sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Ólöf bendir á að fyrsta reynsla margra af vinnu sé Vinnuskólinn: „Eins og nafnið ber með sér á ungt fólk að vera að læra á vinnumarkaðinn í Vinnuskólanum en lærir ekkert um sín réttindi eða skyldur. Þar er ungu fólki ekki kennt neitt nema að það eigi að mæta í vinnuna. Þeim er hvorki kennt að lesa launaseðil né hvað það þýðir að vera í stéttarfélagi. Ég held að þetta sé gallinn. Það eina sem þau læra er að þau eigi að mæta á réttum tíma í vinnuna, sem þau eru nú þegar búin að læra í grunnskól- anum. Að auki læra þau reyndar að það megi ekki kvarta yfir neinu,“ segir Ólöf og kímir. Vinnuskólinn væri kjörinn vettvangur fyrir fræðslu um réttindi og skyldur launa- fólks. En eftir veru í Vinnuskólanum er ungt fólk einskis vísari um hlutverk stéttarfélaga. „Það er alveg eðlilegt að þar sem engin markviss fræðsla er fyrir hendi í þessum efnum, leiti fólk ekki til stéttarfélagsins þegar brotið er á réttindum þess þegar komið er á fullorðinsaldur. Þessu þarf að breyta,“ segir Ólöf. Það er gaman að sjá að maður getur haft áhrif - segir Ólöf Helga Adolfsdóttir, ný í stjórn Eflingar „Þeim er hvorki kennt að lesa launaseðil né hvað það þýðir að vera í stéttarfélagi!“

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==