22
OR L O F S B L AÐ
E F L I NGA R - S T É T T A R F É L AG S
2 0 1 3
Útilegukortið hefur verið starfrækt í þó nokkur ár og hefur sann-
arlega notið mikilla vinsælda og er enn í miklum vexti.
Nú hefur Efling verið í samstarfi um sölu kortsins í nokkur ár og
verður það áfram í sölu á skrifstofu félagsins frá og með 18. mars
á frábæru verði, eða aðeins kr. 8.500,- Fullt verð er kr. 14.900,- svo
félagsmenn geta sparað verulega með þessum kaupum.
Væntum við mikillar eftirspurnar þar sem með kaupum á Útilegukort-
inu getur handhafi þess gist ásamt maka og allt að fjórum börnum
undir 16 ára aldri á yfir fjórða tug tjaldsvæða allt í kringum landið.
Með Útilegukortinu má gista allt að fjórar nætur samfellt á hverju
tjaldsvæði. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert
tjaldsvæði en Útilegukortið gildir fyrir hjólhýsi, tjaldvagna, fellihýsi,
húsbíla og venjuleg tjöld.
Við kaup á Útilegukortinu missir félagsmaður 12 punkta.
í beinni sölu til félagsmanna
á skrifstofu Eflingar
Kort sem veitir aðgang að kringum 45 tjaldsvæðum
hringinn í kringum landið
Útilegukortið 2013
Frekari upplýsingar um kortið og tilboð á vegum þess má fá á
.
Golfkortið 2013
Efling hefur hafið sölu á Golfkortinu til félagsmanna.
Hægt er að koma við á skrifstofunni og kaupa kortið
á aðeins kr. 5.000 fyrir einstaklingskort og kr. 8.000
fyrir fjölskyldukort. Fullt verð fyrir kortin eru annars
9.000 kr. fyrir einstaklingskort og 14.000 kr. fyrir
fjölskyldukort.
Golfkortið var stofnað árið 2010 og er megintilgangurinn
að gera golfspilurum kleyft á sem ódýrastan og auðveld-
astan hátt að spila golf í fríinu, á ferð sinni um landið eða
einfaldlega til að prófa nýja velli, ásamt annarri afþrey-
ingu sem í boði er á hverjum stað.
29 golfvellir eru í boði til spilunar á árinu 2013.
Fjölskyldan getur öll spilað saman án stórútgjalda í fríinu
og auðveldlega notið þannig samveru í þessu skemmti-
lega sporti..
Kortið veitir aðgang að þeim völlum er tilgreindir eru,
fyrir þann fjölda sem tilgreindur er á kortinu. Ef enginn
starfsmaður er á svæðinu má viðkomandi bara fara að
spila og sýnir kortið þegar starfsmann ber að, ef svo ber
undir. Einfaldara verður það nú ekki. Gert er ráð fyrir
að kortið veiti aðgang að hverjum velli til spilunar allt að
fimm hringi, innan ársins og ber að virða það.
Einnig eru vellir með fyrirkomulagið 2 fyrir 1, þ.e. borgar
fyrir einn en tveir geta spilað, sjá sérreglur inn á
Við kaup á Golfkortinu missir félagsmaður 12 punkta.
Ljósm.ÞorfinnurSigurgeirsson