30
OR L O F S B L AÐ
E F L I NGA R - S T É T T A R F É L AG S
2 0 1 3
Það sem skiptir máli
ef óhapp ber að höndum
Reykskynjarar eru lífsnauðsynleg
tæki í öllum húsum og hafa löngu
sannað gildi sitt. Aldrei má taka
rafhlöður úr þeim nema setja nýjar í
staðinn eða láta umsjónaraðila eða
skrifstofu félagsins vita. Munið að
þessi smátæki hafa skipt sköpum
og jafnvel bjargað mannslífum. Þess
vegna verða þau að virka rétt.
Góð regla er þegar komið er í orlofs-
hús til lengri eða skemmri dvalar að
kynna sér vel staðsetningu slökkvitækja,
brunaútganga, neyðarnúmer og annað
sem að gagni gæti komið ef óhapp bera
að höndum.
Einnig er nauðsynlegt að kunna skil á
slökkvitækinu ef á þyrfti að halda.
Öryggisnúmer eru á öllum orlofshúsum
Eflingar sem fólk notar ef gefa þarf upp
staðsetningu, t.d. vegna slyss.
Öll meðferð elds kostar sérstaka
aðgæslu, hvort sem um er að ræða grill,
kertaljós eða einfaldlega reykingar.
Meðferð opins elds í umhverfi húsanna
er alfarið bönnuð!
Sýnum fyllstu aðgæslu og fyrirhyggju, þá
eru meiri líkur á því að sumarfríið verði
áfallalaust og allir komi heilir heim!
stofuna
föstudaginn 29. apríl
og bókað
þær vikur sem eru lausar. Hægt verður að
fylgjast með á heimasíðu Eflingar www.
efling.is hvort eitthvað losni í sumar en
uppfært er vikulega. Greiðslufrestur er 3
dagar frá bókun orlofshúss. Punktar eru
dregnir frá að fullu yfir orlofstímabilið þó
viðkomandi bóki orlofshús með stuttum
fyrirvara.
Sumarferð Eflingar
Skráning
Í sumar stefnir Efling stéttarfélag á að
fara í Öskju og Flateyjardal 12.-15. júlí.
Gist verður á Hótel Eddu Akureyri og
ferðast þaðan daglega. Nánari lýsing á
ferðinni er inni í blaðinu.
Skráning í ferðina hefst 4. apríl.
Mikilvægar tímasetningar
Umsóknir fyrir sumar 2013
Tekið er við umsóknum vegna orlofsdval-
ar í húsum/íbúðum Eflingar-stéttarfélags
til og með 15. mars nk.
Umsóknir sem
berast eftir þann tíma verða ekki teknar
fyrir.
Úthlutun
Fyrsta úthlutun mun liggja fyrir
25.
mars.
Staðfestingarbréf verða send út
til allra hvort sem þeir fengu úthlutað
eða synjun. Staðfesta þarf og greiða eigi
síðar en til og með
8. apríl.
Ef ekki er
greitt á gjaldaga er litið svo á að viðkom-
andi ætli ekki að taka bústaðinn. Önnur
úthlutun liggur fyrir
12. apríl
og þá fá
allir bréf hvort sem þeir fengu úthlutað
eða synjun. Greiðslufrestur hjá þeim er
til og með
22. apríl.
Fyrstur kemur – fyrstur fær
Enginn biðlisti
Eftir að aðal- og endurúthlutun hefur
farið fram og greiðslufrestur er liðinn þá
liggur frammi á skrifstofu Eflingar-stétt-
arfélags listi yfir allar lausar vikur sumarið
2013. Félagsmenn geta komið á skrif-
Athugið ekki lengur til staðar!
Geislaspilarar – dvd
Eins og tilkynnt var í fyrra er orlofssjóður hættur með þá þjónustu að hafa geisla-
spilara og dvd í húsunum/íbúðunum. Auðvelt er að taka með sér spilara eða flakk-
ara að heiman og tengja við sjónvarpstækin í húsunum/íbúðunum.
Gott er að geyma blaðið