33
OR L O F S B L AÐ E F L I NGA R - S T É T T A R F É L AG S
2 0 1 3
Flateyri, Brynjukot
7. júní – 31. ágúst
Hús kvenfélagsins Brynju Flateyri –
Brynjukot – var byggt rétt eftir aldamótin
1900 – og er dæmigert fyrir hús sem
reist voru á þessum tíma á Íslandi. Búið
er að gera ýmsar endurbætur á húsinu á
undanförnum árum, en stefnt er að því
að húsið verði að þeim loknum í sem
upprunalegastri mynd.
Húsið er á tveimur hæðum 66,4 fermetr-
ar í allt. Á efri hæð hússins eru tvö svefn-
herbergi, og rúm eru þar fyrir þrjá auk
barnarúms. Á neðri hæð eru tvö herbergi,
þ.e. setustofa með tveimur svefnbekkjum
og borðstofa, en þar er tvíbreiður svefn-
bekkur. Aukadýnur og sængur eru fyrir
hendi. Á neðri hæð er eldhús búið öllum
venjulegum rafmagnstækjum. Í húsinu er
einnig salerni, sturtuklefi og þvottavél.
Flateyri er miðsvæðis þegar litið er til
norðanverðra Vestfjarða – og reyndar
Vestfjarða í heild. Til Ísafjarðar er
20-30 mínútna akstur frá Flateyri. Frá
ferjustaðnum Brjánslæk á Barðaströnd
er um 2 klst. akstur. Flateyri er sjávar-
þorp sem byggðist upp á síðari hluta 19.
aldar. Íbúafjöldi er nú um 300. Há og
brött fjöll umlykja Flateyri og náttúru-
fegurð er mikil. Þar er að finna heilsu-
gæslu, bensínstöð, sundlaug og litla
matvörubúð.
Hrísey einbýlishús
30. maí – 30. ágúst
Það var með mikilli ánægju sem við
kynntum Hrísey til sögunnar sem nýjan
kost í orlofsmálum félagsins í fyrra-
sumar. Enda var það svo að leigutakar
þar áttu vart orð að lýsa ánægju með
dvölina þar. Það er alveg víst að þar má
Vestmannaeyjar
lofa öðruvísi og spennandi sumarfríi
fjölskyldunnar. Það er ævintýri líkast að
dvelja á slíkum stað og njóta fegurðar,
kyrrðar og annars þess sem slíkt eyjalíf
býður upp á!
Hrísey er í miðjum Eyjafirði og þang-
að er siglt með ferjunni Sævari frá
Ársskógssandi. Siglingin tekur aðeins
um 15 mínútur og eru margar ferðir á
degi hverjum.
Húsið er eldra einbýli, 50 fermetra
hæð og svefnloft, 2 svefnherbergi og
góð svefnaðstaða fyrir 6 manns. Húsið
stendur á stórri lóð með útsýni yfir
höfnina, hafið og fjöllin um kring.
Hrísey er einstök perla, næst stærsta
eyja landsins með blómlegu en rólegu
mannlífi og stórfenglegu útsýni um allan
Eyjafjörð. Svo er augnablik að skutlast
yfir á meginlandið ef Akureyri eða aðrir
staðir í nágrenninu kalla!
Vestmannaeyjar íbúð – allt árið
Áfram bjóðum við íbúð í Vestmanna-
eyjum en hún er reyndar til útleigu allt
árið. Eyjarnar eru vinsæll viðkomustað-
ur ferðamanna og geysimargt þar að sjá,
ekki síst tengt eldgosinu sem þar varð.
Ekki er að efa að mikið verður sótt um
þar í ár. Þá hafa samgöngur batnað með
tilkomu Landeyjarhafnar og aðeins stutt
sigling þaðan út í Eyjar.
Þar er um að ræða 3ja herbergja íbúð
í blokk, ca. 90 fermetrar. Tvö svefnher-
bergi og fullbúið eldhús með borðbún-
aði fyrir 10–12 manns.
Vakin er athygli á því að íbúðin er ekki til
úthlutunar um Verslunarmannahelgina.
Flateyri
Ljósm.ÞorfinnurSigurgeirsson
Ljósm.ÞorfinnurSigurgeirsson