28
OR L O F S B L AÐ E F L I NGA R - S T É T T A R F É L AG S
2 0 1 3
Allt dýrahald er alfarið bannað
í orlofshúsum Eflingar.
Upp hafa komið alvarleg
ofnæmistilfelli í kjölfar
dýrahalds í húsunum.
Brot á þessu varðar
tafarlausri brottvísun
úr húsinu.
Komutími - brottför
Leigutaka ber að vitja lykla á auglýstum
tíma! Ef þið tefjist er alveg nauðsynlegt
að láta umsjónarmann vita. Að öðrum
kosti er ekki hægt að tryggja afhendingu
lykla!
Viðkomandi símanúmer koma fram á
leigusamningi.
Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllu
sem því fylgir. Skal hann þrífa vel eftir
sig þ.m.t. ísskáp, eldavél, bakaraofn og
örbylgjuofn, skápa, salerni og grill og
skúra gólf. Einnig þrífa heita pottinn
ef þeir eru. Stilla skal ofna á 1–2, loka
gluggum og hurðum vandlega, skila lykli
á sinn stað og taka minni rafmagnstæki
úr sambandi. Komið ábendingum og
athugasemdum til umsjónarmanna eða á
skrifstofu Eflingar.
Húsbúnaður
Orlofshús og íbúðir Eflingar eru með
svipuðum búnaði, ætluð fyrir 5 til 10
manns eftir stærð. Öll eldhúsáhöld eru
til staðar, ísskápur, eldavél og örbylgju-
ofn. Sængur og koddar, barnastóll og
barnarúm, sturta, svo og sjónvarp, útvarp
og kola- eða gasgrill.
Orlofshúsin eru sameign okkar, göngum
um þau af alúð og sóma.
Ef einhverju
er ábótavant varðandi umgengni eða
viðskilnað fyrri gesta vinsamlega
látið þá umsjónarmann vita, strax við
komu, áður en nokkuð er aðhafst.
Ef
vanhöld eru varðandi þrif getur komið
til þess að húsið verði þrifið á kostnað
síðasta leigutaka.
Leigutaki þarf að hafa með sér hand-
sápu, handklæði, diskaþurrkur, borð-
tuskur og salernispappír. Einnig lín
utan um sængur, kodda og lök.
Öllum húsum Eflingar fylgja efni til
þrifa, uppþvottalögur og burstar, gólf-
sápa og wc hreinsir. Gólfþveglar og
moppur eru til staðar svo og kústar og
ryksuga.
Um ábyrgð og dýrahald!
Leigutakar nýti sjálfir ásamt fjölskyldum
og/eða vinum hús sem þeir fá úthlutað.
Framsal til annarra getur valdið því að
viðkomandi félagsmaður verði útilokað-
ur frá úthlutun framvegis. Það á einnig
við ef leigutakar brjóta almennar reglur
og skyldur sem þeir takast á hendur við
leigu orlofshúsa.
Allt dýrahald er alfarið bannað í orlofs-
húsum Eflingar. Upp hafa komið alvar-
leg ofnæmistilfelli í kjölfar dýrahalds í
húsunum. Brot á þessu varðar tafarlausri
brottvísun úr húsinu og útilokun frá
leigu húsa.
Hafið samband
Hafi leigutaki einhverjar athugasemdir
eða ef eitthvað vantar í húsin þá vinsam-
legast látið umsjónarmenn á viðkom-
andi stað vita. Einnig er hægt að hafa
samband við skrifstofu Eflingar-stéttar-
félags á opnunartíma skrifstofu í síma
510-7500 (Þórunn eða Sveinn).
Minnisblaðið
þitt...
Þegar þú ferð í orlofshús
Frá Súðavík
Ljósm.ÞorfinnurSigurgeirsson
1...,18,19,20,21,22,23,24,25,26,27 29,30,31,32,33,34,35,36