24
OR L O F S B L AÐ
E F L I NGA R - S T É T T A R F É L AG S
2 0 1 3
Eins og undanfarin ár ætlum við að
bjóða félagsmönnum Eflingar uppá
áhuga­verða og skemmtilega sumarferð
næsta sumar.
Sumarferðirnar hafa ávallt verið mjög
vinsælar og hafa færri komist að en
vildu.
Nú í sumar verða áhugaverðir hálendis-
staðir norð- austurlands skoðaðir.
Ráðgert er að leggja af stað frá Reykja-
vík nánar tiltekið frá Sætúni 1 og farið
sem leið liggur norður til Akureyrar þar
við verðum með aðsetur.
Gist verður á Hótel Eddu Akureyri.
Á laugardeginum er ráðgert að fara í
Öskju og um Herðubreiðarlindir. Stór-
brotin náttúran fangar hug mans sem
gaman verður að skoða. Margar og
miklar eldstöðvar eru í Öskju en þekkt-
ust er vafalaust Öskjuvatn. Þvermál
þess er nálægt 150 m og dýpt 60 m. Til
gamans má nefna að síðast gaus í Öskju
árið1961. Í bakaleiðinni verður snæddur
kvöldverður í Fjallakaffi á Möðrudal á
Fjöllum.
Á sunnudeginum verður síðan Flat-
eyjardal gerð góð skil. Flateyjardalur er
fallegur langur dalur sem gengur inn í
landið vestan Viknafjalla og Kinnarfjalla
á skaganum sem er á milli Eyjafjarðar og
Skjálfanda.
Athygli er vakin à að þessi ferð er að
sumu leyti hálendisferð og því þarf að
hafa í huga skjólgóðan fatnað og góða
skó til gönguferða sem og nesti.
Á mánudeginum höldum við síðan heim
á leið um þjóðveg 1 með góðum stopp-
um á áhugaverðum stöðum.
Fararstjóri okkar verður Anna Soffía,
þaulreynd og mun hún fræða okkur um
alla staðhætti ferðalagsins.
Tveir félagslegir starfsmenn munu einn-
ig vera hópnum til halds og trausts.
Lagt verður af stað í ferðina
kl. 8.00 frá
Sætúni 1.
Innifalið í ferðinni er akstur, leiðsögn,
gisting á Hótel Eddu í þrjár nætur, þrír
morgunverðir og þrír kvöldverðir.
Ferðalangar þurfa að hafa með sér nesti
fyrir hádegishressingu alla dagana.
Innritun í ferðirnar hefst 4. apríl
2013 kl. 8:15 á skrifstofu Eflingar-
stéttafélags.
Ferðin kostar kr. 39.000 fyrir gist-
ingu í tveggja manna herbergjum en
49.000 fyrir gistingu í eins manns
herbergi. Síðasti greiðsludagur í ferð-
ina er 16. apríl.
Sumarferð Eflingar 2013
Askja og Flateyjardalur
12. -15. júlí
Ljósm.ÞórirSigurgeirsson
1...,14,15,16,17,18,19,20,21,22,23 25,26,27,28,29,30,31,32,33,34,...36