31
OR L O F S B L AÐ E F L I NGA R - S T É T T A R F É L AG S
2 0 1 3
Orlofssumarið 2013
Viðbót við okkar eigin hús!
Stykkishólmur íbúð – allt árið
Stykkishólmur er afar eftirsóttur orlofs-
staður enda miðsvæðis og býður upp á
fjölbreytta möguleika fyrir þá sem þar
dvelja. Vinsælar eru siglingar þaðan um
Breiðafjörð, jafnvel alla leið yfir á Barða-
strönd með viðkomu í Flatey.
Íbúðin er að Laufásvegi 23 Stykkis-
hólmi í raðhúsalengju, um 65 m
2
að
stærð. Á neðri hæð er hjónaherbergi
með tvíbreiðu rúmi, gestaherbergi með
koju og baðherbergi/wc með sturtu. Á
efri hæð er stofa/borðstofa og eldhús í
samfelldu rými svo og lítið gestaherbergi
með svefnsófa. Svefnpláss, sængur og
koddar eru fyrir 7 manns.
Út frá efri hæð eru svalir með rafmagns-
nuddpotti, gasgrilli og svalahúsgögnum.
Íbúðinni fylgir aðgangur að golfvellinum
án endurgjalds fyrir þá sem þar dvelja.
Þessi íbúð er til útleigu bæði á sumar-
og vetrartíma.
Sem fyrr leggjum við hér á orlofs-
sviðinu áherslu á að útvíkka starfsem-
ina með því að taka á leigu viðbótar-
hús yfir sumarið þegar mest álag er
vegna eftirspurnar húsa. Reynt er að
dreifa þeim húsum vítt og breitt um
landið og lögð áhersla á svæði sem eru
fjarri orlofshúsum og svæðum í eigu
félagsins.
Þetta fyrirkomulag hefur verið viðhaft
undanfarin ár og fallið umsækjendum vel
í geð. Síðasta sumar voru í boði hús bæði
í Hrísey og á Blönduósi í fyrsta sinn auk
þess sem Arnarstapi kom aftur inn eftir
langt hlé. Óhætt að segja að þau hafi öll
fengið frábærar viðtökur og verða áfram
í boði. Nýjungin í ár er sú að Þingeyri og
Flateyri koma nú inn í fyrsta sinn en þar
eru afar spennandi möguleikar til afþrey-
ingar í sumarfríinu eins og lesa má nánar
hér að neðan.
Hér verður lýst nánar þessum viðbótar-
húsum, staðsetningu þeirra og öllu því
öðru sem þarf að vita um þau.
Arnarstapi – 31. maí til 30. ágúst
Eftir nokkurt hlé var Arnarstapi aftur til
úthlutunar s.l. sumar og verður áfram í
sumar og vonandi til frambúðar. Þetta er
afar eftirsótt svæði á sumrin og ekki hægt
að anna allri eftirspurn þar.
Auk þess sem Arnarstapi er í þægi-
legri fjarlægð frá Reykjavík er þar afar
fallegt og mjög margt að skoða í næsta
nágrenni. Hægt er að keyra um allt
Snæfellsnesið og þræða sjávarbyggðirnar
á einum degi en þar eru byggðakjarnar
eins og Hellisandur, Rif, Ólafsvík og að
sjálfsögðu Stykkishólmur.
Flestum finnst þó að Snæfellsjökulsþjóð-
garður sé þarna í aðalhlutverki en þar er
Snæfellsjökull að sjálfsögðu miðpunktur-
inn. Mörgum þykir auk þess mikil dulúð
yfir Arnarstapa þar sem hann kúrir undir
jöklinum með allri sinni kynngimögnun!
Húsið er hefðbundið sumarhús, þrjú
svefnherbergi með hjónarúmi og kojum
og svefnloft með aukadýnum. Svefnpláss
og allur búnaður fyrir um 8 manns.
Stykkishólmur
Ljósm.ÞorfinnurSigurgeirsson