OR L O F S B L AÐ
E F L I NGA R - S T É T T A R F É L AG S
2 0 1 3
32
Blönduós íbúð 31. maí – 30. ágúst
Áfram verður Blönduós í boði sem
orlofskostur hjá Eflingu. Um er að ræða
þar 95 fermetra, splunkunýtt raðhús
með öllum þægindum. Húsið er vel
staðsett og Blönduós auðvitað í alfara-
leið og miðsvæðis. Ákveðin þægindi
fylgja því að dvelja inn í bæ og hafa
alla þjónustu innan seilingar, versl-
anir, sundlaug og fleira. Svo er auðvitað
fjöldi spennandi staða í nágrenninu sem
gaman er að heimsækja og skoða, hvort
sem sóst er eftir náttúruupplifun eða
tómstundum eins og golfi eða veiði. Úr
nógu er að moða!
Húsið er með tveimur svefnherbergjum,
rúmgóðri stofu og eldhúsi, baðherbergi
og þvottahúsi auk geymslu. Í garði eru
sólhúsgögn og grill. Góða aðstaða fyrir
6 – 8 manns.
Hólar í Hjaltadal íbúð
14. júní – 30. ágúst
Hólar eru með sögufrægustu stöðum
Íslandssögunnar. Segja má að þarna tali
saga lands og þjóðar en margir af afdrifa-
ríkustu atburðum sögunnar gerðust á
þessum slóðum. Nú er þar skólasetur og
mikil mennta- og menningarstarfsemi.
Þarna bjóðum við til leigu góða 4ra herb.
íbúð í nemendagörðunum sem er nýleg
og vel búin. Íbúðin er 97m², gistiaðstaða
er fyrir 7 og þvottavél fylgir íbúðinni.
Mikil náttúrufegurð er á Hólum og í
nágrenninu og fjölbreyttir afþreyingar-
möguleikar. Stutt er bæði á Hofsós og
Sauðárkrók.
Þingeyri endaraðhús
31. maí – 30. ágúst
Segja má að spennandi staður hafi
bæst við í orlofsmálunum í sumar en
Hólar í Hjaltadal
Þingeyri
þá verðum við með raðhús á Þingeyri í
fyrsta sinn. Húsið stendur við Aðalstræti
42. Fullyrða má að Þingeyri sé mjög
fjölskylduvænn staður sem býður upp á
fjölmargt til afþreyingar og svo er mikil
náttúrufegurð allt í kring.
Ekki þarf að fjölyrða um vinsældir Vest-
fjarðasvæðisins undanfarin ár enda tala
sumir um það sem eitt best geymda
leyndarmálið varðandi ferðlög í dag.
Á staðnum er sundlaug með heitum
potti, Víkingasvæði með siglingum
og öðrum uppákomum, kaffihús og
veitingastaðir. Þar er einnig einn
flottasti golfvöllur landsins, krefj-
andi og skemmtileg áskorun fyrir
golfáhugamenn.
Hestaleiga er nágrenninu og áhuga-
verðar gönguleiðir eru um slóðir Gísla
Súrssonar í Haukadal. Kaldbakur hæsti
tindur Vestfjarða er á þessum slóðum og
er fjallaskaginn oft nefndur
Vestfirsku
Alparnir
. Falleg strönd liggur beint á
móti þorpinu hinum megin við fjörðinn.
Með tilkomu brúar yfir Dýrafjörð og
jarðgangna undir Breiðadalsheiði hafa
samgöngur batnað til muna og gert það
að verkum að auðvelt er að komast á
milli staða. Ekki skemmir fyrir að Þing-
eyri er þekkt landsvæði fyrir veðurblíðu
á sumrin.
Húsið telur hjónaherbergi, svefnher-
bergi, stofu með svefnsófa, þvottahús
með þvottavél og þurrkara, og fullbúið
eldhús með búnaði fyrir amk. 10 manns.
Úti er sólpallur, garðhúsgögn og gasgrill.
Ljósm.ÞorfinnurSigurgeirsson
Ljósm.ÞorfinnurSigurgeirsson