29
OR L O F S B L AÐ E F L I NGA R - S T É T T A R F É L AG S
2 0 1 3
Sérstakt orlofshúsakerfi Eflingar
heldur utan um allar úthlutanir
félagsins, þar safnast réttindi upp í
formi punkta á hvern félagsmann og
lífaldur getur jafnframt haft áhrif á
úthlutanir. Fjöldi punkta markast af
greiðslum til félagsins en reynt er að
búa út sem mestan jöfnuð í kerfinu
þannig að þeir sem hafa lægri tekjur
eigi einnig góða möguleika á að fá
úthlutað íbúðum og orlofshúsum.
Tölvukerfið úthlutar þannig að öllum
umsóknum er raðað eftir punktaröð,
þ.e. þeir umsækjendur sem hafa flesta
punkta eru efst í röðinni og svo koll af
kolli.
Lífaldur ræður ef punktar tveggja eru
jafnir þ.e. sá sem er eldri fær fyrst
úthlutað. Kerfið les sig síðan í gegn um
allar umsóknirnar og skoðar hvert val
fyrir sig. Þeir sem ekki fengu úthlutað
í fyrstu umferð fara sjálfkrafa beint á
biðlista ásamt þeim umsækjendum sem
hafa fengið úthlutað s.l. ár páska/sumar.
Eftir fyrri staðfestingarfrest verður
úthlutað aftur skv. sömu reglu á þær
umsóknir sem eru á biðlista.
Svona safnast punktar
Punktar safnast þannig að fyrir tekjur
sem nema allt að 40.000,- kr. á mánuði
fæst 1 punktur, en 2 punktar á mánuði
fyrir tekjur umfram þá upphæð.
Hámarkssöfnun er 12 ár eða 288
punktar. Þegar 12 árum er náð fellur
elsta árið aftan af og það nýja bætist við.
Félagsmenn á eftirlaunum og öryrkjar
eiga sama rétt á að sækja um hús og
aðrir félagsmenn. Einnig félagsmenn
í atvinnuleit sem greiða félagsgjöld af
atvinnuleysisbótum eiga rétt til að sækja
um hús.
Fyrstur kemur fyrstur fær !
Ef engin umsókn er um tiltekna viku
eftir fyrri og seinni úthlutun, er úthlut-
að samkvæmt sérstakri auglýsingu
óháð punktakerfi, þ.e.
„Fyrstur kemur,
fyrstur fær“
og þá borgar sig að mæta
tímanlega.
Í ár geta félagsmenn komið á skrif-
stofuna föstudaginn 29. apríl og bókað
þær vikur sem lausar eru.
Úthlutun orlofshúsa og íbúða
Punktakerfi og úthlutanir
Nú hefur öll þjónusta orlofssjóðs
verið samræmd með þeim hætti að
dregnir eru frá punktar af punktainn-
eign félagsmanns vegna allra úthlut-
ana úr sjóðnum.
Þetta er gert til að mismuna ekki
þeim sem fá úthlutað orlofshúsi og
hinum sem t.d. fara í innanlands-
ferðir svo dæmi sé tekið. Að neðan
má sjá hvert frádragið er fyrir hverja
úthlutun.
Reynt er að hafa frádragið í nokkuð réttu
hlutfalli við það hvað hvert verðmæti er
fólgið í viðkomandi úthlutun úr sjóðnum.
Punktafrádrag
Úthlutanir úr orlofssjóði
1/6 - 14/6 14/6 - 16/8 16/8 - 30/8
Pottlaus hús
48 punktar
72 punktar
48 punktar
Hvammur, Skarð og önnur hús me› pottum
60 punktar
84 punktar
60 punktar
Akureyri og leiguhús
60 punktar
84 punktar
60 punktar
Innanlandsfer›
24 punktar
Útilegu-, veiði-, og golfkortið
12 punktar
Dagsetningar:
Punktafrádrag er með eftirfarandi hætti:
29. apríl!
Fyrstur kemur – fyrstur fær
1...,19,20,21,22,23,24,25,26,27,28 30,31,32,33,34,35,36