3
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Viðtalið Leiðari
JANÚAR 2014
1. TÖLUBLAÐ, 19. ÁRGANGUR
UPPLAG 20.000 EINTÖK
Útgefandi:
Efling-stéttarfélag
Sætúni 1
Ábyrgðarmaður
Sigurður Bessason
Ritstjóri
Þráinn Hallgrímsson
Aðstoð við ritstörf og útgáfu
Herdís Steinarsdóttir
Sigríður Ólafsdóttir
Ritstjórn
Atli Lýðsson
Sigurður Bessason
Sigurrós Kristinsdóttir
Starfsmenn á skrifstofu
Anna Lísa Terrazas
Arna Björk Árnadóttir
Atli Lýðsson
Berglind Davíðsdóttir
Elín Hanna Kjartansdóttir
Fjóla Jónsdóttir
Guðrún Kr. Óladóttir
Guðrún Sigurbjörnsdóttir
Harpa Dís Jónmundsdóttir
Harpa Ólafsdóttir
Harpa Þórðardóttir
Helga Sigurðardóttir
Helga Bryndís Kristjánsdóttir
Herdís Steinarsdóttir
Hrannar Gíslason
Ingibjörg Ólafsdóttir
Jóna Sigríður Gestsdóttir
Kolbrún S. Jónsdóttir
Kristjana Valgeirsdóttir
Oddný Einarsdóttir
Ragnar Ólason
Ragnheiður Baldursdóttir
Sigríður Ólafsdóttir
Sigurður Bessason
Sigurrós Kristinsdóttir
Sveinn Ingvason
Tómas Hermannsson
Tryggvi Marteinsson
Þórir Guðjónsson
Þórunn Birgisdóttir
Þráinn Hallgrímsson
Starfsafl
Sveinn Aðalsteinsson
Valdís Steingrímsdóttir
Útlit og umbrot
Þorfinnur Sigurgeirsson
Prentun og bókband
Auglýsingar
Hænir s. 55 88 100
Forsíðumynd
Júlía York Khoo, leikskóla- og félagsliði
á leikskólanum Langholti
Aðsetur
Efling-stéttarfélag, Sætún 1
Sími 510 7500 / fax 510 7501
Skrifstofa Eflingar er opin
frá kl. 08:15-16:00
Skrifstofa Suðurlandi
Austurmörk 2
810 Hveragerði
Sími 510 7575 / fax 510 7579
Netfang
EFNISYFIRLIT
Sigurður Bessason
Leiðari
Í ávarpi forsætisráðherra á gamlárskvöld fjallaði ráðherra sérstaklega um stöðu fólks á lægstu launum og
hvað það væri mikilvægt og brýnt að laga stöðu þess. Þessi framsetning var mjög sérstæð í ljósi þess að þá
þegar lágu fyrir nýundirritaðir kjarasamningar. Kjarasamningar sem unnið var að allt síðastliðið haust þar
sem leitað var eftir því ítrekað við forsætisráðherra og fjármálaráðherra að koma til móts við þennan hóp í
tengslum við breytingar á skattalögum. Því var hafnað af hálfu ríkisstjórnarinnar ítrekað.
Engar tillögur lágu fyrir af hálfu ríkisstjórnar um húsnæðismál þó kallað væri eftir úrræðum í þeim mála-
flokki og þá sérstaklega eftir fé til að mæta kostnaði við húsaleigubætur en ljóst má vera að breytingar á
húsnæðisbótum og úrlausnir á húsnæðismarkaði hefðu gagnast þessum hópi vel. Brýnt er að forsætisráð-
herra útskýri orð sín hvaða úrlausnir hann er að vísa til enda hann í stöðu til þess að mæta væntingum fólks.
Nýgerðir kjarasamningar hafa valdið töluverðum titringi í samfélaginu. Tekist var á um tvær leiðir eins
og oft áður í kjarasamningunum. Annars vegar hvort samningarnir yrðu byggðir á grundvelli stöðugleika í
samfélaginu sem leiddi til kaupmáttaraukningar samhliða aðgerðum í skattamálum. Hinn kosturinn var að
byggja eingöngu á kröfu um krónutöluhækkun launa með hárri almennri prósentuhækkun til þeirra sem
standa utan taxtakerfa.
Kröfurnar voru skýrar af hálfu félagsmanna Eflingar - stéttarfélags. Að hér yrðu allir aðilar að koma að því að
skapa stöðugleika, lækka verðbólgu, auka kaupmátt og lækka skatta ásamt því að hækka sérstaklega lægri
laun umfram önnur laun. Það yrðu allir að taka þátt í þessu verkefni, launafólk, atvinnurekendur, stjórnvöld
og fyrirtæki sem hafa mikil áhrif á verð vöru og þjónustu. Það er ekki bara launafólkið sem á að taka á sig
ábyrgð. Ljóst var á framsetningu krafna að félagsmenn eru orðnir langþreyttir á að sjá allar launabreytingar
hverfa í verðbólgu þar sem kostnaðarhækkunum hefur verið velt yfir í verðlagið með neikvæðum áhrifum
verðbólgu á skuldir heimilanna í formi lána eða leiguverðs á markaði.
Niðurstaða félagsmanna okkar var skýr, bæði í Gallup könnun okkar, á stórum fundum trúnaðarmanna
og samninganefndar. Að fara leið kaupmáttarauka með það að markmiði að ná raunhæfum kjarabótum og
leiðréttingum í skattkerfinu. Það er alveg ljóst að við hefðum viljað sjá meiri ávinning en það var ekki í boði
án átaka.
Niðurstaða þessara kjarasamninga mun hafa mikil áhrif á hvert við stefnum á næstu árum. Við horfum á
þennan samning sem skammtímasamning til þess að búa til umhverfi þar sem við getum undirbúið kjara-
samninga til lengri tíma þar sem tekist verður á við það stóra verkefni að reyna að skapa hér stöðugleika.
Ljóst er að okkar bíða fjölmörg brýn verkefni og þá sérstaklega varðandi heildarlausnir á húsnæðismarkaði,
í lífeyrismálum og skattamálum. Það er tímabært að skoða hvernig bæði útsvarið og tekjuskatturinn leggst
á fjölskyldur í landinu og þá ekki síst í ljósi ráðstöfunartekna.
Nú er það hinsvegar þitt ágæti félagi að taka ákvörðun um næstu skref varðandi niðurstöðu kjarasamnings-
ins.
Þitt atkvæði vegur jafn þungt og öll önnur. Góð þátttaka í atkvæðagreiðslunni sýnir styrk félagsmanna og
félagsins að takast á við þetta mikilvæga verkefni sem kjarasamningarnir eru.
Náðum ekki lengra án átaka . . . . . . .4
Greiðslur í ræstingum breytast . . . . . 6
Til félagsmanna Eflingar-stéttarfélags . . . 8
Hvað gerir stjórn Eflingar-stéttarfélags? . .10
Mikil notkun kallar á endurbætur . . . . . . . . .12
Páskaúthlutun orlofshúsa Eflingar 2014 . .13
Aldrei of seint að byrja . . . . . . . .18
Jákvæðni og markmiðasetning á nýju ári . .20
Trúnaðarmannanámskeið vorið 2014 . . .23
Hvaða nám hentar þér? . . . . . . . .24
Þörf fyrir verkalýðshreyfinguna . . . . . 26
Útskriftir . . . . . . . . . . . . .27
Allir með fyrirtaks meðmæli . . . . . . 28
Þetta tókst allt saman . . . . . . . . 31
Allt á fullu í desember . . . . . . . . 32
Kennitöluflakk veldur miklu tjóni . . . . .34
Gott að fá annað sjónarhorn . . . . . . 35
Krossgátan . . . . . . . . . . . .36
Vinningshafi . . . . . . . . . . . .37
Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur . . . . . 38
Sigurður Bessason
formaður Eflingar-stéttarfélags
141
776
U
M
H
V
E
R
F
I
S
M
E
R
K
I
PRENTGRIPUR
Oddi,umhverfisvottuð prentsmiðja