8
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Kjarasamningar
•
Þannig hækkar taxtakerfið og tekjutryggingin meira en almenna launahækkunin.
•
Með sérstakri hækkun taxtakerfis og tekjutryggingar er öryggisnet lægri launa varið og um leið öryggisnet þeirra sem liggja
utan við taxtakerfi kjarasamningsins.
•
Á undanförnum árum er það einmitt hækkun taxtakerfis og tekjutryggingar sem hefur verið ein helsta vörn þeirra sem
búið hafa við lægri laun og tekjur í samfélaginu.
•
Ef þessi aðfarasamningur verður samþykktur, hefjast viðræður um lengri kjarasamning aðila þar sem unnið verður áfram
á grundvelli vaxandi kaupmáttar og stöðugleika.
•
Snemma á árinu 2014 munu viðræður fara í gang sem snúa að sérmálum ýmissa starfahópa. Kröfur þurfa að koma fram
fyrir lok janúar 2014.
•
Breytingar á þrepum tekjuskatts og skattahlutfall hefur í för með sér skattalækkun hjá stórum hópi launafólks.
•
Öll stærstu sveitarfélög landsins hafa samþykkt fyrir áskoranir samningsaðila að hækka ekki gjaldskrár sínar nú um
áramótin.
•
Gjaldskráhækkanir ríkisins eru lægri en upphaflega var áætlað skv. fjárlögum.
•
Aukið fé er lagt samkvæmt kjarasamningnum til starfsmenntamála sem er sérstaklega mikilvægt meðal félagsmanna
Flóafélaganna.
•
Áfram verður unnið að nauðsynlegum, félagslegum umbótamálum og skipta þar áform í húsnæðismálum mestu þar sem
áhersla er á nýtt húsnæðiskerfi með öryggi fyrir alla, hvort sem þeir eru eigendur eða leigjendur húsnæðis.
Ágæti félagi,
Stéttarfélagið þitt hefur nú undirritað kjarasamning sem
liggur fyrir. Við höfum reynt að vanda vinnu okkar að kjara-
samningunum eins og kostur er í því erfiða ástandi sem ríkt
hefur á vinnumarkaðnum undanfarin ár. Þar er atvinnuleysi
meðal félagsmanna ennþá allt of hátt, kaupmáttur langt frá
því að vera ásættanlegur, verðbólga of há og við höfum lagt
mikla áherslu á lækkun skatta á lægri tekjur. Það vantraust
sem grafið hefur um sig meðal launafólks í kjölfar vanefnda
stjórnvalda hefur leitt til þess að verkalýðshreyfingin treystir
sér einungis til gerðar skammtímasamnings, aðfarasamnings
að lengri kjarasamningi. Markmiðið er að byggja upp starfs-
kjör með forsendur fyrir nýjum trúverðugum kjarasamningi á
vinnumarkaði. Við biðjum þig að íhuga að tvívegis í desember-
mánuði s.l. slitnaði upp úr viðræðum um kjarasamninginn.
Allt frá vordögum 2013 höfum við unnið að undirbúningi
kjarasamninganna með stórum hópi trúnaðarmanna og síðan
fjölmennri 120 manna samninganefnd frá sl. hausti. Byggt
hefur verið annars vegar á viðhorfskönnun Capacent Gallup
og fjölmennum fundi trúnaðarmanna félaganna. Þar var
einróma áhersla á kaupmáttaraukningu, lækkun skatta og
stöðugleika á vinnumarkaði. Þegar kom að lokaáfanga samn-
inganna, samþykkti fjölmennur hópur samninganefndarmanna
að vinna eftir framkomnum forsendum og heimilaði að senda
samninginn þannig í almenna atkvæðagreiðslu.
Mikilvægasti ávinningur kjarasamninganna er að hafa náð
launastefnu í samræmi við vilja félagsmanna okkar. Þar er
grunntónninn sá sami og sleginn hefur verið á annan áratug.
Að þeir sem búa við lakari tekjur fá meira í sinn hlut en hinir.
Til félagsmanna Eflingar-stéttarfélags