Fréttablað Eflingar - janúar 2014 - page 9

Viðtalið
9
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Viltu fá ráðgjöf í starfsendurhæfingu?
Félagsmönnum Eflingar býðst nú að ræða við ráðgjafa hjá félaginu um
starfsendurhæfingu sér að kostnaðarlausu.
Þjónustan miðar að því að efla styrkleika þína og draga úr áhrifum hindrana á vinnugetu og þátttöku á vinnumarkaði.
Ef starfsgeta þín er skert vegna heilsubrests þannig að þú getir ekki sinnt starfi á vinnumarkaði, hvetjum við þig til að hafa
samband við ráðgjafa.
Frekari upplýsingar um þjónustu ráðgjafa í starfsendurhæfingu er hægt að finna á heimasíðu VIRK,
eða að hafa samband við stéttarfélagið
.
Kjarasamningar
Við sem höfum unnið að gerð þessa
kjarasamnings undanfarna mánuði telj-
um að ekki hafi verið unnt að ná lengra
án átaka. Til að snúa af leið hárrar
verðbólgu sem étur upp launahækkanir,
verður að þora að taka skrefið. Við vilj-
um ekki leyna vonbrigðum okkar með
að ekki tókst að ná fram hærra framlagi
stjórnvalda í skattamálum sem hefði
verið afgerandi styrkur fyrir þennan
kjarasamning.
Það er niðurstaða okkar að þessi
aðfarasamningur sé raunhæfur kostur
og grunnur til að byggja á til framtíðar.
Við vonumst til þess að þú sért sammála
okkur. Mest er um vert að þú takir þátt
í atkvæðagreiðslunni og sýnir þannig
afstöðu þína til samningsins. Það er
styrkur okkar allra.
Með félagskveðju,
Sigurður Bessason
1,2,3,4,5,6,7,8 10,11,12,13,14,15,16,17,18,19,...40
Powered by FlippingBook