Fréttablað Eflingar - janúar 2014 - page 6

Kjaramál
6
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Greiðslur í ræst-
ingum breytast
Tímamæld ákvæðisvinna
Mismunandi kjarasamningar og samnings­
tímabil
Tímamæld ákvæðisvinna við ræstingu er
greidd samkvæmt fjórum meginkjarasamn-
ingum sem gilda hjá Eflingu, þ.e. á almenna
markaðnum við Samtök atvinnulífsins og eins
á opinbera markaðnum sem er við Reykja-
víkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga
og ríkið. Það er þó mismunandi eftir kjara-
samningum hvenær næsta samningstímabil
hefst og þá eins hvenær nýtt kerfi tekur gildi.
Hjá Reykjavíkurborg og ríkinu verður greitt
samkvæmt nýju kerfi frá og með 1. febrúar
2014 en hjá öðrum sveitarfélögum frá og með
1. mars 2014. Í kjarasamningi við Samtök
atvinnulífsins er miðað við að nýja greiðslu-
fyrirkomulagið gildi frá 1. febrúar 2014.
Álagstímabil breytist í áföngum
Meginbreytingin felst í því að nú er verið
að taka mið af því samningsumhverfi sem
gildir almennt fyrir félagsmenn Eflingar þar
sem álagstímabil fyrir eftirvinnu hefst kl.
17.00 virka daga. Í kjarasamningi við Samtök
atvinnulífsins mun álagstímabilið breytast í
áföngum, þar sem að frá 1. janúar 2015 fer
það úr klukkan 18.00 í 17.00 og úr klukkan
07.00 í 08.00.
Lágmarkstaxtar samkvæmt launatöflu og
starfsaldurshækkanir
Þá er einnig nýmæli að lágmarkstaxtar fyrir
tímamælda ákvæðisvinnu í ræstingum taka
framvegis mið af gildandi launatöflu líkt og
ræsting í tímavinnu og ræsting í vaktavinnu.
Sú breyting þýðir jafnframt að starfsaldurs-
hækkanir munu gilda fyrir þá sem vinna í
ákvæðisvinnu. Ákvæðisvinnuálag fyrir tíma-
mælda ákvæðisvinnu er 20%, þar af er 8% álag
fyrir neysluhlé. Í kjarasamningi við Samtök
atvinnulífsins er lágmarkstaxti fyrir tímamælda
ákvæðisvinnu við ræstingar launaflokkur 2,
auk 20% ákvæðisvinnuálags. Til viðbótar
kemur 33% eftirvinnuálag virka daga á kvöldin
og 45% álag á nóttunni og um helgar. Fyrir
vinnu umfram 40 stundir á viku er greitt 80%
yfirvinnuálag.
Verklýsingar þurfa að vera skýrar
Líkt og ávallt hefur gilt fyrir tímamælda
ákvæðisvinnu í ræstingu er mjög mikilvægt
að skrifleg verklýsing ásamt ræstingartíðni-
teikningu liggi fyrir sem afmarkar skýrt það
sem þrífa á og með hvaða áherslum. Tekið skal
fram á hvaða tíma dags svæðið skal ræst og
hve oft. Ekki var greitt sérstakt ákvæðisvinnu-
álag í því greiðslufyrirkomulagi sem gilti áður
heldur átti ávinningurinn að felast í því að
ljúka verkinu á skemmri tíma en sem nam
þeim vinnustundafjölda sem greiddir voru.
Nýtt fyrirkomulag ætti því alla jafna að fela í
sér að greiddir verði færri tímar fyrir verkið.
Það er þó með afar misjöfnum hætti hvernig
slík breyting verður hjá hverjum og einum
starfmanni og því mikilvægt að verklýsingar
séu skýrar.
Fyrirkomulag ræstingarvinnu fyrir tíma­
vinnu og vaktavinnu verður óbreytt
Fyrirkomulag ræstingarvinnu fyrir tímavinnu
og vaktavinnu breytist ekki. Lágmarkstaxtar
fyrir tímavinnu eða dagræstingu er launa-
flokkur 2 í kjarasamningi við Samtök atvinnu-
lífsins og greiðist 80% yfirvinnuálag eftir kl.
17.00 virka daga og um helgar. Lágmarkstaxtar
fyrir ræstingu í vaktavinnu er launaflokkur 6
í kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins þar
sem vaktir þurfa að vera fyrirfram skipulagðar
og getið um það í ráðningarsamningi.
Nánari upplýsingar um launataxta og álags-
greiðslur í einstökum kjarasamningum er
hægt að sjá á heimasíðu félagsins:
/
Áhrif koma fram í vinnutíma, álagstímabili,
lágmarkstöxtum og starfsaldurshækkunum
Greiðslur fyrir tímamælda ákvæðisvinnu í ræstingum breytast
frá og með næsta samningstímabili. Meginbreytingin felst í því
að nú er verið að taka mið af því samningsumhverfi sem gildir
almennt fyrir félagsmenn Eflingar þar sem álagstímabil fyrir
eftirvinnu hefst kl. 17.00 virka daga og mun sama launatafla
gilda fyrir ákvæðisvinnu í ræstingu og aðra starfahópa. Þessi
breyting er ekki síst til komin í kjölfar aukinna útboða á ræst-
ingum. Útboðin hafa leitt til þess að sá ávinningur sem fólst í
því að hægt væri að ljúka verkinu með færri vinnustundum en
greitt var fyrir, hefur nánast horfið og er víðast hvar eingöngu
greitt fyrir staðinn tíma.
Mundu eftir heimasíðunni,
upplýsingar um sumar­
hús, kjaramál, námskeið og
fræðslu, réttindi í sjúkrasjóði
og margt margt fleira.
1,2,3,4,5 7,8,9,10,11,12,13,14,15,16,...40
Powered by FlippingBook