35
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Viðtalið Viðtal
Þegar ég byrjaði að vinna hér var ég
stuðningsforeldri fyrir fatlað barn
og þess vegna langaði mig líka bæta
félagsliðanum við.
Gott að fá annað
sjónarhorn
Júlía York Khoo hefur ætíð haft gaman
af að vinna með fötluðum og börnum
og hefur gert það lengi vel. Hún hefur
verið dugleg að sækja sér þá menntun
sem Efling stéttarfélag hefur boðið
upp á og er ein af tveimur Eflingar-
félögum sem hefur bæði lokið leik-
skóla- og félagsliðanum en er nú sú
eina í félaginu með þessa menntun þar
sem hin hefur hafið önnur störf. Blaða-
maður Eflingar fékk að forvitnast um
hvað það var sem vakti áhuga hennar á
náminu og hvað það er sem nýtist henni
í starfi en hún starfar sem leikskólaliði
á leikskólanum Langholti.
Ég vann á frístundaheimili og langaði að breyta
til og prófa að vinna á leikskóla, ég hef alltaf
haft gaman af að vinna með börnum, segir
Júlía. Hún segir að þó hún verði oft þreytt eftir
daginn þegar það eru mikil læti, gefi henni
það svo mikla gleði að vera með börnunum að
það fái hana til að halda áfram. Það eru fleiri
dagar sem eru auðveldari en hitt og það er svo
skemmtilegt og engir tveir dagar eru eins þrátt
fyrir ákveðið skipulag.
Gott að hitta aðra
Hún ákvað að fara í leikskólaliðann til að bæta
við sig þekkingu og fá hugmyndir og reynslu
annarra til að bæta sig í starfi. Maður er dálítið
í sínum ramma og það er gott að hitta aðra og
fá þeirra sjónarhorn og öðlast öðruvísi sýn á
hlutinn sem maður er að gera, segir hún. Mér
finnst ég vera reynslunni ríkari eftir þetta nám
og það geri starf mitt betra.
Aðspurð hvort hún hafi ekki spáð í því að
skella sér í leikskólakennarann segir hún að
eins og staðan sé núna heilli það hana ekki
mikið. Það er kannski af því að þetta er fimm
ára nám en ekki þrjú eins og áður var en það
gæti verið að ég færi einhvern daginn.
Af hverju félagsliði?
Júlía hefur unnið á leikskóla á níunda ár og
kláraði leikskólaliðann fyrir tveimur árum
og tók félagsliðann beint í framhaldi og lauk
honum síðasta vor. En af hverju ákvað hún
að taka félagsliðann líka? Þegar ég byrjaði að
vinna hér var ég stuðningsforeldri fyrir fatlað
barn og þess vegna langaði mig líka að bæta
félagsliðanum við. Hún segist vel geta hugsað
sér að taka eina og eina vakt á stofnun og
vinna með fötluðum líka.
En nýtist félagsliðanámið henni í leikskóla-
starfinu? Já, eftir að ég tók þessi tvö nám hef
ég miklu meiri þekkingu á sviðum sem ég var
ekki endilega að pæla í. Eins ef það kæmi fatl-
aður einstaklingur í leikskólann þá gæti það
hjálpað mér að annast hann ef ég fengi það
hlutverk, segir Júlía en hún tók fötlun sem
valfag í félagsliðanáminu.
Margt sameiginlegt
Aðspurð hvor að það sé munur á þessum
tveimur námsleiðum segir hún að uppbygging
kennslu hafi verið svipuð en í leikskólalið-
anum hafi verið meira einblínt á börnin og í
félagsliðanum á fatlaða einstaklinga sem eru
fullorðnir eða aldraðir. Ég fékk einhver fög
sem ég var búin með í leikskólaliðanummetin,
að vissu leyti tengist þetta en er samt sitthvor
hluturinn.
Júlía er skráð í Félag íslenskra félagsliða og
reynir að mæta á fundi hjá bæði leikskóla- og
félagsliðum hjá Eflingu. Ég er svo heppin að
síðustu tvö skiptin hafa verið sameiginlegir
fundir en ég fæ alltaf tvö fundarboð, segir hún.
Það sem hélt mér uppi var hvað
námið var skemmtilegt.
Langir dagar
Það er ekki úr vegi að spyrja þessa kraftmiklu
ungu konu sem tók báðar námsleiðir með
vinnu hvort hún hyggi á áframhaldandi nám.
Ef það er eitthvað sem heillar mig er mikill
möguleiki að ég haldi áfram en það er ekki
neitt sem er í boði núna í sambandi við leik-
skóla- eða félagsliðann sem ég get tekið. Fram-
haldsnám félagsliða sem var kennt í haust var
um geðraskanir og fatlanir og þar sem Júlía
tók fötlun sem valfag í félagsliðanum var hún
búin með of mikið. Ef ég hefði tekið öldrun
sem valfag hefði ég komist í framhaldsnám
en ég var í raun búin með of mikið, ég var að
vonast til að framhaldsnámið hefði verið um
alzheimer en svo var ekki, segir hún.
Var ekki erfitt að vera í námi með vinnu? Þetta
voru langir dagar, ég var mætt klukkan átta um
morgun og var komin heim um níu, þannig
að þetta voru um 12 -13 tíma dagar. Það sem
hélt mér uppi var hvað námið var skemmtilegt,
segir Júlía að lokum.
Júlía York Khoo, leikskóla- og félagsliði á leikskólanum Langholti